Norðurnes 45-46

276 Mosfellsbær

Ásett verð: 39.900.000 kr.

Norðurnes 45-46
Tegund
Sumarhús
Stærð
55,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1978
Fermetraverð
716.338 kr.

Lýsing

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu vel staðsettan sumarbústað á sameinaðri 5.580fm. eignarlóð við Norðurnes 45 og Norðurnes 46 í Kjósinni.

Eignin er staðsett innst í sumarhúsahverfinu rétt við Svínadalsá á vel gróinni og ræktaðri lóð.

Eigendur hafa getað nýtt sér sumarbústaðinn allan ársins hring. Bústaðurinn er tengdur við hitaveitu.

Falleg lóð sem bíður upp á ýmsa möguleika s.s. að bæta við sumarbústað á lóð nr. 45.

Lýsing á bústaðnum:

Fallegur sumarbústaður sem var fyrst byggður 1978 en hefur verið mikið uppfærður og stækkaður.

Búið er að bæta við svefnálmu með tveimur svefnherbergjum við bústaðinn.

Rúmgóð stofa/borðstofa með kamínu og mikilli lofthæð. Áður var svefnloft sem tekið hefur verið niður og lofthæðin nýtt. Gluggi settur á gaflinn til að gefa góða birtu inn í stofuna. Útgengt úr stofu út á svalir.

Opið eldhús við stofuna með snyrtilegri eldhúsinnréttingu og eldavél.

Tvö svefnherbergi annað mjög rúmgott.

Rúmgott baðherbergi með vask og salernisaðstöðu.

Nýlega var skipt um þak á bústaðnum.

Sumarhúsafélagið Norðurnes: 90 þkr fyrir árið nú en er annars ákveðið á aðalfundi hvers árs.

Grenndarstöð er við vegamót Meðalfellsvegar. Rotþró er tæmd á annað hvert ár.

Samkvæmt nýju Aðalskipulagi 2024-2036:

Það má byggja í heild 200m2 á lóðinni, lóðin er 5580m2.

Smáhýsi undir 15m2 teljast ekki með í heildar byggingarmagni.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is