Holtsvegur 47

210 Garðabær

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Holtsvegur 47
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
105,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
665.081 kr.

Lýsing

Valhöll og Valhöll kynna:

Nýleg 105 fm, 2ja herbergja íbúð að Holtsvegi 47 í Garðabær (Urriðaholti).

Íbúðin er í rólegri götu og er á 2.h. í þessu nýlega lyftuhúsi, en útgengt er á einkaafnotaflöt frá stofu.

Sérmerkt bílastæði íbúðar á lóð.

Góð íbúð á vinsælum stað.

Húsið var byggt 2018.

Lyfta er í húsinu.

Birt stærð eignarinnar er 105,1fm.

Hafið samband við Vilborgu í síma 891 8660 eða vilborg@valholl.is fyrir nánari upplýsingar eða til þess að bóka skoðun á eigninni.

Lýsing:

Eignin er á 2. hæð og skiptist í borstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og tvö gluggalaus rými þar sem annað þeirra er nýtt sem geymsla inn af forstofu.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskápum, parket á gólfi.

Geymsla er inn af forstofu.

Baðherbergi flísalagt, með opnu sturturými, upphengdu salerni og góðri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Stofa/borðstofa/eldhús liggur saman í opnu og björtu rými.

Eldhúsið er með góðum innréttingum og tækjum, parket á gólfi og eyja með grantítborðplötu.

Frá stofu/borðstofu er útgengt á svalir/verönd til suðurs sem er einkaafnotaflötur.

Svefnherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.

Vinnurými: Gluggalaust vinnu- eða leikrými með parketi á gólfi sem hægt er að nýta sem vinnuaðstöð, leikherbergi eða það sem hentar hverjum og einum, viftur sjá um loftskipti í geymslu og vinnurými.

Bílastæði fylgir íbúð framan við inngang skv. eignaskiptayfirlýsingu.

Í sameign, sem lítur vel út, er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Falleg eign, með marga nýtingarmöguleika, á góðum stað í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt í alla helstu þjónustu; skóla, leikskóla, verslanir, golfvelli og útivistarsvæði auk þess sem stutt er í stofnbrautir.

Nánari upplýsingar veitir:

Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 891 8660 / vilborg@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.