Keldugata 1

210 Garðabær

Ásett verð: 229.000.000 kr.

Keldugata 1
Tegund
Einbýlishús
Stærð
319,800001525879 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
4
Byggingarár
2022
Fermetraverð
716.073 kr.

Lýsing

Glæsilegt einbýlishús við Keldugötu 1 í Urriðaholti, Garðabæ, með einstöku útsýni yfir Urriðavatn, Setbergshlíð og Heiðmörk.

* 5 svefnherbergi, 4 baðherbergi, 2 eldhús, 3 svalir.

* Aukaíbúð á jarðhæð með sérinngangi.

* Útsýni

Seljendur skoða skipti á minni eign til dæmis par-/raðhúsi í Garðabæ.

Nánari upplýsingar veitir:

Páll Pálsson Lgf. 7754000 / palli@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

[link]

Eignin er skráð 319,8 m2 samkv. Fasteignaskrá Íslands.

Nánari lýsing eignar :

2. hæð

Forstofa: Flísalögð með stórum fataskáp.

Eldhús: Eldhús er parketlagt með sérsmíðaðri fallegri innréttingu, miklu geymsluplássi í skápum, skúffum og hillum. Sérlega góð og vel útfærð vinnuaðstaða. Tveir ofnar í innréttingu frá Siemens. Amerískur kæliskápur í innréttingu. Siemens eldhúseyja með niðurfelldu helluborði. Rennihurð út til suðurs þar sem gert er ráð fyrir palli.

Borðstofa og setustofa: Borðstofa og setustofa eru samliggjandi í parketlögðu opnu og björtu rými með aukinni lofthæð. Stórir gluggar til vesturs, suðurs og norðurs. Setgluggi í borðstofu. Útgengt á stórar svalir til suðurs, vesturs og norðurs.

Baðherbergi: Vegghengt salerni og sérsmíðuð innrétting. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.

Bílskúr: 36,9 m². Gluggar á tvo vegu. Lagnir til staðar til að setja upp vask. Sérbílastæði fyrir þrjá bíla fyrir framan bílskúr með hleðslustöð fyrir rafbíl.

3. hæð

Gengið er upp steinsteyptan stiga.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með gólfsíðum gluggum og svölum. Innangengt fataherbergi. Fallegt útsýni.

Svefnherbergi: Rúmgott og bjart. Gluggar á tvo vegu.

Baðherbergi: Ófrágengið en flísar, öll blöndunartæki og sturtugler eru á staðnum. Útgengt út á stórar þaksvalir þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.

Jarðhæð

Gengið er niður steinsteyptan stiga.

Sjónvarpsrými: Bjart og opið rými með parket á gólfi. Rennihurð þar sem er útágengt til suðurs út í garð.

Baðherbergi; Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni og rúmgóð ”walk-in” sturta með sturtuhaus og handsturtu. Spegill með innbyggðri lýsingu og dökkt sturtugler. Sérsmíðuð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél.

Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með sérsmíðuðum skáp.

Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með sérsmíðuðum skáp.

Aukaíbúð

Andyri: Andyri er parketlagt.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni og rúmgóð ”walk-in” sturta með sturtuhaus og handsturtu. Spegill með innbyggðri lýsingu og dökkt sturtugler. Sérsmíðuð innrétting með miklu skápaplássi. Skápur fyrir þvottavél.

Eldhús, borðstofa og sjónvarpsstofa: Samliggjandi í opnu og björtu rými. Eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi. Öll eldhústæki innbyggð inn í innréttingu. Stórir gólfsíðir gluggar með útsýni yfir Urriðavatn. Borðstofa og sjónvarpsrými. Parket á gólfi.

Svefnherbergi: Rúmgott með stórum skápum.

Nettenglar í svefnherbergi og alrými.

Efnisval, innréttingar og tæki

Húsið er staðsteypt í varmamótum frá nudura og því einangrað bæði að utan og innan. Húsið er múrað að innan og á að klæðast að utan með álklæðningu. Efnisval innanhúss er að mestu hið sama alls staðar í húsinu sem gefur því stílhreina ásýnd. Vandaðar innréttingar frá Fríform á neðstu hæð og frá HTH á mið- og efstu hæð. Allir frontar og innihurðir í húsinu eru sérsmíði frá Svansverki. Allar innihurðir eru gereftislausar með segullokun og sóplista. Blöndunartæki eru frá Lusso. Hvergi var sparað við efnisval á eldunartækjum í aðaleldhúsi. Flísar, vínilparket og hurðarhúnar eru frá Ebson. Hljóðvistardúkur frá ENSO í stofurými og gert ráð fyrir sama efni í öll loft í húsinu. Gert ráð fyrir innfelldri led lýsingu í stofu, setgluggum og sturtum og rafmagni í gardínum.

Óklárað

Eignin er skráð á byggingastig 4 (ÍST 51:2001) en er að stórum hluta fullfrágengin að innan, baðherbergi 3ju. hæðar ófrágengið auk þess sem eftir er að setja lýsingu og dúk í loftið fyrir utan stofurými og teppi á stiga.

Gert er ráð fyrir loftræsikerfi í öllum rýmum hússins, allar ísteyptar lagnir til staðar, en eftir að ljúka uppsetningu kerfisins.

Urriðaholt

Stutt er í grunnskóla og þrjá leikskóla í göngufæri, og hverfið er vel tengt við samgönguæðar.

Urriðaholt er umlukið fjölbreyttum opnum náttúrusvæðum í Heiðmörk, við Vífilstaðavatn og við Urriðavatn með frábærum göngu- og hjólastígum. Urriðaholt er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun skv. vottunarkerfi BREEAM Communities. Einn besti golfvöllur landsins, Urriðavöllur, liggur að hverfinu en auk þess eru tveir aðrir golfvellir í næsta nágrenni, Setbergsvöllur og Leirdalsvöllur.

Í Kauptúni er þjónustukjarni í göngufæri þar sem er meðal annars að finna IKEA, Costco, Bónus og Vínbúðina. Auk þess er í Urriðaholti að finna m.a. Krambúð, kaffihús, klippistofu, líkamsrækt, sportbar o.fl. Meira má lesa um hverfið á [link]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.