Hafnargata 121

415 Bolungarvík

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Hafnargata 121
Tegund
Einbýlishús
Stærð
154,09999961853 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1992
Fermetraverð
421.155 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - Til sölu - Hafnargata 121 Bolungarvík. Einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr.

Á jarðhæð er forstofa, herbergi, stofa og borðstofa, eldhús, salerni og þvottahús.

Á efri hæð er stigapallur, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Góður 30,9 m² bílskúr. Innréttað garðhýsi með baði og svefnaðstöðu.

Komið er inn í forstofu, flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi.

Innaf forstofu er herbergi, þaðan er útgengt út í garð.

Gengið inn úr forstofu inn í hol, harðparket á gólfi í stofu, holi og eldhúsi.

Úr stofu er útgengt út á hellulagða verönd og út í garð.

Lítil snyrting á neðri hæð með flísum á gólfi, vaskur og skápur.

Þvottaherbergi með flísum á gólfi, gott hillupláss, vaskur og gott rými fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhúsinnrétting er hvít og slétt, rými fyrir uppþvottavél, helluborð og ofn.

Gengið upp stiga upp á efri hæð, þar er stigapallur með harðparketi á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, handklæðaofn, baðkar með sturtu og hvítur skápur.

Þrjú svefnherbergi á hæðinni. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi, harðparket á gólfi.

Tvö minni svefnherbergi með harðparketi á gólfi.

Bílskúr er 30,9 m², með hvítri bílskúrshurð og fjarstýrðum opnara, gólf þar er steypt og málað.

Innréttað smáhýsi í bakgarði, svefnaðstaða, baðherbergi með salerni og sturtu, eldhúsaðstaða, rafmagn.