Skólastígur 6
415 Bolungarvík

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 165,700000762939 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1924
Lýsing
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] kynnir til sölu - Skólastígur 6 Bolungarvík - Tilboð óskast!-
Einbýlishús á tveimur hæðum auk óinnréttaðrar rishæðar - eign sem marga möguleika.
Skipulag: Á neðri hæð er forstofa, geymsla, hol/gangur, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð er setustofa, stofa, eldhús og borðstofa, sér útgangur þar.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Inngangur bakatil í viðbyggingu, þar er forstofa með flisum á gólfi, hiti í gólfi og fataskápur. Hleri í lofti upp á geymsluloft fyrir ofan forstofu.
Geymsla inn af forstofu, á eftir að klára að klæða veggi þar.
Hol með gegnheilu stafaparketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Annað minna herbergi með parketi á gólfi
Þriðja herbergið einnig með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar og sturtuklefi, hvít innrétting og handklæðaofn.
Inn af baðherbergi er þvottahús með borði og hillum, flísar á gólfi og útgangur bakatil.
Efri hæð:
Stigi úr holi upp á aðra hæð, þar er hol með parketi á gólfi, sér útgangur þar og tröppur niður í garð Skólastígsmegin.
Falleg setustofa og stofa með parketi á gólfi.
Eldhús með ágætri innréttingu, gott skápapláss, helluborð, ofn, háfur og tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Rúmgóð borðstofa við eldhús, möguleiki á að opna borðstofu inn í setustofu, parket á gólfi.
Rishæð er skráð 11,6 m² að stærð og er óinnréttuð en gefur ýmsa möguleika til notkunar.
Garður með sólpalli og skjólveggjum fyrir framan hús.
Húsið var endurnýjað að hluta á árunum 2000-2005. Allir gluggar endurnýjaðir þá sem og allar lagnir.
Eignin þarfnast viðhalds að utanverðu.