Hagamelur 35

107 Reykjavík

Ásett verð: 167.400.000 kr.

Hagamelur 35
Tegund
Hæð
Stærð
180 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1956
Fermetraverð
930.000 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 – jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna Hagamel 35 - Rúmgóða 180 fermetra mikið endurnýjaða eign með sérinngangi, fimm svefnherbergjum og suðursvölum. Eignin er eingöngu sýnd með einkaskoðun.

Eignin skiptist í sér anddyri, fimm svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús og geymslu. Bílskúrsréttur fylgir eigninni. Fjöldi svefnherbergja og dvalarrými á báðum hæðum bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Nánari lýsing eignar:

Komið inní flísalagt anddyri. Sérinnangur og nýlegar flísar.

Stigi með nýlegu teppi upp á aðalhæð. Fataskápar í stigaholi.

Aðalhæð : skráð um 110 fermetrar.

Eldhús og stofa eru í opnu, samliggjandi rými. Hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Stofa með parketi. Gluggar á 3 vegu.

Á hæðinni eru jafnframt þrjú svefnherbergi með parketi.

Aðalsvefnherbergið er rúmgott með fataskápum og svölum til suðurs,

Baðherbergi er flísalagt með sturtu, endurnýjað með fallegum hvítum flísum.

Efri hæð: skráð um 70 fermetrar, en gólfflötur er nær 80 fermetrum

Þegar komið er upp á efri hæð er rúmgott sjónvarpsherbergi ,

Velux þakgluggar eru til staðar og auðvelt er að lofta út. Mögulegt er að stækka hæðina með því að setja kvist.

Herbergjagangur og þar er gengið í tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtuhaus, auk lítils þvottahúss og geymslu .

Sameiginlegur garður.

Teikningar

Viðhald og endurbætur:

Þak, gluggar, neysluvatnslagnir og ofnalagnir hafa verið endurnýjuð á undanförnum árum. Fyrir um ári voru frárennslis- og drenlagnir myndaðar og reyndust í góðu lagi.

Bílskúrsréttur er til staðar. Fyrirspurn var send um byggingu hans til skipulagsfulltrúa sem tók vel í það. Kaupandi getur tekið málið áfram óski hann eftir því.

Flott eign í rólegu umhverfi í hjarta Vesturbæjar, nærri íþróttafélagi, leikskólum, grunnskólum, verslunum eins og Melabúðinni, Vesturbæjarsundlauginni og Háskóla.

Nánari upplýsingar um Hagamel 35 gefur: Jason Kristinn Ólafsson í netfangið jason@betristofan.is eða í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali