Hallveigartröð 5

320 Reykholt í Borgarfirði

Ásett verð: 76.900.000 kr.

Hallveigartröð 5
Tegund
Einbýlishús
Stærð
195,199998474121 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
393.955 kr.

Lýsing

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu einstaklega rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskú r á friðsælum og góðum stað að Hvallveigartröð 5 í Reykholti, Borgarbyggð. Eignin er skráð samtals 195,2 fermetrar , þar af er íbúðarhlutinn 162,6 fermetrar og bílskúr 32,6 fermetrar samkvæmt Þjóðskrá Íslands.

Nánari upplýsingar veitir:

Halldór Sveinbjörnsson - löggiltur fasteignasali - halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali - baldur@fastgardur.is

Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, fjögur svefnherbergi , hol/sjónvarpsrými, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr. Frá stofu og baðherbergi er gengið út á skjólgóða verönd á baklóð þar sem heitur pottur er staðsettur. Um er að ræða mjög fallegt fjölskylduhús með góðri aðstöðu og notalegri aðkomu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur. Gesta salerni.

Gestasnyrting: Flísalögð gólf og veggir. Upphengt salerni. Aðgengilegt úr forstofu.

Eldhús : Parket á gólfi. Ljós viðarinnrétting og flísar milli efri og neðri skápa. Ofn, helluborð, háfur og uppþvottavél. Eldhúsið er opið að holi og býður upp á góða vinnuaðstöðu.

Stofa/borðstofa : Rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi og glugga í þrjár áttir. Útgengt er út á pall sem snýr í suður og er með sjólvegg.

Fjögur svefnherbergi: Öll með parketi á gólfum. Þrjú herbergjanna eru með fataskápum.

Baðherbergi: Útgengt er út á verönd með skjólvegg þar sem heitur pottur er staðsettur. Rúmgott rými. Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni. Ljós viðarinnrétting og flísalögð sturta með gleri.

Þvottahús: Flísar á gólfi, hvít innrétting og skolvaskur. Innangengt frá þvottahúsi í bílskúr.

Bílskúr: Flísalagður, með hita, rafmagni og vatni.

Annað:

Húsið stendur efst í rólegu hverfi ofan við Reykholtskirkju. Um er að ræða timburhús á steyptum sökkli, byggt árið 2008. Varmaskiptir í húsinu. Hallogenlýsing. Klætt með liggjandi báru. Hellulögð innkeyrsla.

Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagt hús og skjólsælt útisvæði – kjörið fyrir fjölskyldufólk sem vill rólegt og fjölskylduvænt umhverfi í náttúrulegu og fallegu umhverfi. Skóli er í aðeins 6 kílómetra fjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir:

Halldór Sveinbjörnsson - löggiltur fasteignasali - halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali - baldur@fastgardur.is

Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.