Holtsvegur 47

210 Garðabær

Ásett verð: 91.600.000 kr.

Holtsvegur 47
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
111,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
820.054 kr.

Lýsing

RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf . & SALVÖR ÞÓRA Lgf . kynna :

( Salvör: 844-1421 / salvor@remax.is | Hera Björk: 774-1477 / herabjork@remax.is )

Falleg og björt 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð, stórum svölum með glerlokun, einstöku útsýni, rúmgóðri sameign og sérmerktu stæði í bílageymslu í vönduðu lyftuhúsi að Holtsvegi 47.

Frábær staðsetning í suðurhlíð Urriðaholts þar sem stutt er í leik- og grunnskóla er eru rétt fyrir ofan húsið ásamt notalegu hverfiskaffihúsi. Falleg útivistarsvæði og mikil náttúrufegurð eru í næsta nágrenni og stutt í göngu- og hjólaleiðir í einstaklega fallegu umhverfi. Jafnframt er stutt í golfvöll og alla helstu þjónustu og stofnleiðir.

Húsið er vandað, með góðri aðstöðu, og sameign einstaklega rúmgóð og snyrtileg.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS

Húsið er vandað með góðri aðstöðu og er sameign einstaklega rúmgóð og snyrtileg.

** Rúmgott og snyrtilegt anddyri

** Mynddyrasími

** Bjartur og snyrtilegur stigagangur

** Rúmgóð lyfta

** Mjög rúmgóð vagna- og hjólageymsla

** Fallegur og góður sameiginlegur garður

** Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð

Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með bílahleðslustöð. Auk þess eru 11 bílastæði fyrir utan húsið, þar af eitt fyrir hreyfihamlaða og eitt til sérafnota. Tvær sameiginlegar bílahleðslustöðvar eru við sameiginleg bílastæði.

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita :

Salvör Þóra, lgf. í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is

Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjorfk@remax.is

Nánar um eignina :

Um er að ræða bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með aukinni lofthæð, fallegu útsýni, stórum svölum með glerlokun og sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Heildar birtir fermetrar eignarinnar skv. HMS eru alls 111,7 fm og skiptast þannig:

Íbúð – 88,3 fm : Forstofa, þvottahús, gangur/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa.

Geymsla – 23,4 fm : Rúmgóð sérgeymsla, velstaðsett í sameign á 1 hæð (01-0105).

Svalir – 12 fm: Rúmgóðar svalir (01-0308) með glerlokun og skráðar 12 fm en eru ekki inni í heildar fermetratölu íbúðar.

Í sameign á fyrstu hæð er sérmerkt bílastæði (01-B03) með bílahleðslustöð í sameiginlegri bílageymslu ásamt stórri hjóla- og vagnageymsla (01-0113 - um 41,4fm).

Aðkoman að húsinu er hin snyrtilegasta með hellulögðu bílastæði. Húsið er fjögurra hæða og gengið er inn í það frá götu á 1. hæð/jarðhæð í gott anddyri með rafdrifnum hurðaopnunum og póstkössum. Á 1. hæð/jarðhæð eru jafnframt sameiginleg rými, m.a. vagna- og hjólageymsla, ruslageymsla, verkfærageymsla, lokuð bílageymsla og sérgeymslur. Af 2. hæð hússins er gengið út í snyrtilegan sameiginlegan garð og þaðan liggja tröppur upp á göngustíg fyrir ofan húsið. Íbúðin er á 3. hæð og hægt að nota rúmgóða og snyrtilega lyftu eða ganga upp snyrtilegan stiga.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D

Nánari lýsing :

Forstofa : Parketlögð

Þvottahús : Inn af forstofu með flísum á gólfi, handklæðaofni, þvottasnúrum, vaskaborði og vask.

Gangur/hol : Góðir fataskápar, mynddyrasími og parket á gólfi. Þaðan er gengið inní önnur rými íbúðar.

Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með góðum fataskápum og parketi á gólfi.

Barnaherbergi : Bjart og gott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi : Fallegt baðherbergi með vandaðri innréttingu, ljósri kvartsborðplötu, góðri walk-in sturtu og handklæðaofni. Fallegar flísar eru á gólfi og veggjum og gluggi með opnanlegu fagi veitir góða náttúrulega birtu og loftun.

Eldhús/Stofa/borðastofa : Bjart og opið alrými með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum, fallegu útsýni og parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar suðvestur svalir með glerlokun.

Eldhús : Falleg viðarinnrétting með ljósri kvartsborðplötu og flísum á milli skápa. Ofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Falleg eldunareyja með góðu skúffuplássi, spanhelluborð og háfi skilur eldhúsið að frá stofu og borðstofu og myndar um leið skemmtilega tengingu milli rýmanna..

Svalir (12 fm): Stórar suðvestursvalir með glerlokun og fallegu útsýni. Svalaflísar eru á gólfi og glerlokunin gerir svalirnar að einstaklega notalegu viðbótarrými stóran hluta ársins.

Sameign : Öll hin snyrtilegasta og aðgengi gott. Útihurðir eru með rafdrifinni opnun, stigagangur er teppalagður og lyfta rúmgóð. Á 1. hæð eru vagna- og hjólageymsla, ruslageymsla, verkfærageymsla, lokuð bílageymsla og sérgeymslur.

Bílageymsla : Sameiginleg lokuð bílageymsla er á 1. hæð með 9 bílastæðum. Íbúðinni fylgir vel staðsett sérmerkt bílastæði (01-B03) með bílahleðslustöð.

Virkilega falleg, björt og vel skipulögð eign með aukinni lofthæð, stórum glerlokuðum svölum og einstöku útsýni á frábærum stað í Urriðaholti. Sjón er sögu ríkari!

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita :

Salvör Þóra , löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is

Hera Björk , löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjorfk@remax.is

-----------------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda :

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits : Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um …