Aðalstræti 22
470 Þingeyri

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 103 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1920
Lýsing
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir "Litla Holt", einbýlishús á Þingeyri, við Aðalstræti 22
Litla Holt er tveggja hæða timburhús með kjallara sem nú stendur við Aðalstræti 22 á Þingeyri er sagt byggt árið 1920.
Í fasteignaskrá Íslands er það samtals skráð 103 m2.
Talið er að húsið sé eldra, en það hafi verið flutt af Jóni Jónssyni skipstjóri utan úr Haukadal og inn á Þingeyri. Í Haukadal nefndist húsið Holt. Eftir að húsið var gert upp árið 2006 gaf núverandi eigandi því nafnið Holtsendi. Á skilti á húsinu stendur nú (2011) nafnið Litlaholt. Hús þetta var eitt af svokölluðum Holtshúsum í Haukadal, sem stóðu sunnan við Seltjörnina (t.d. Vésteinsholt og Brautarholt, sem enn standa). "upplýsingar fengnar af vefnum með hús í farangrinum".
Skipulag hússins er að það er komið inn í litla forstofu, þar til hliðar er baðherbergi, eldhús er staðsett inn af forstofu, vestan megin í húsinu á 1. hæð. Austan megin í húsinu eru tvö herbergi og lítil stofa, þá er stigi upp á 2. rishæð hússins, sem er unnt að nýta sem herbergi eða stofu.
Kjallari er undir húsinu með gluggum á norður hlið hússins.
Aðkoma að húsinu er góð, en suð-vestan megin við húsið er pallur með skjólveggjum.
Um er að ræða gamalt og fallegt timburhús sem stendur við Aðalstræti 22 á Þingeyri, það er m.a. í göngufæri við sundlaug og íþróttahús á staðnum.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.