Geislagata 10 íbúð 202

600 Akureyri

Ásett verð: 37.900.000 kr.

Geislagata 10 íbúð 202
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
53,7 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1925
Fermetraverð
705.773 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466-1600

Geislagata 10 íbúð 202 - Skemmtileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli í miðbæ Akureyrar - stærð 53,7 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi, auk sér geymslu undir stiga.

Forstofa er með parketi á gólfi og þreföldum, hvítum sprautulökkuðum fataskáp.

Í eldhúsi er hvít sprautulökkuð innrétting með beyki bekkplötu og flísum á milli skápa.

Stofa og eldhús eru í björtu og opnu rými þar sem er parket á gólfi, gluggar til suðurs og hurð út á skemmtilegar suður svalir. Hvít sprautulökkuð innrétting og flísar á milli skápa.

Svefnherbergið er rúmgott og með parketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc og sturtu.

Sér geymsla tilheyrir íbúðinni, (merkt 204) og er hún undir stiga sem liggur upp á 3ju hæð. Þar er plast parket á gólfi og hillur. Ekki er full lofthæð í geymslunni.

Annað

- Innbú getur fylgt með við sölu eignar.

- Á jarðhæðinni undir stigapalli er geymsla sem er í sameign með íbúðum á 2. og 3ju hæð hússins.

- Íbúðin hefur verið í skammtímaleigu.

- Vel staðsett eign í miðbæ Akureyrar.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.