Bitra
803 Selfoss
Ásett verð: 23.500.000 kr.

- Tegund
- Sumarhús
- Stærð
- 20,4 m²
- Herbergi
- 1
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2002
- Fermetraverð
- 1.151.961 kr.
Lýsing
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Bitra, sumarbústaður 20,4 fm á góðu ræktunarlandi, 6,73 ha eignarlandi í Flóahreppi. Skammt frá Skeiðavegamótum. Ca 10 mín akstur á Selfoss.
Um er að ræða lítið timburhús 20,4 fm byggt 2002. Lítil óskráð geymsla við hlið hússins og önnur óskráð stærri útigeymsla/skýli. Pallur í kringum hús.
Húsið er eitt aðalherbergi, lítið salerni og lítið herbergi. Vatn og rafmagn í húsi. Laus rafmagnsofn.
Leyfilegt er skv deiliskipulagi að byggja eitt frístundahús og eitt 40fm gestahús/útihús á landinu. (deiliskipulag frístundabyggðar Kersholts)
Landið er á tveimur fastanúmerum/landnúmerum. Landið sem húsið stendur á er 3,36 ha og landið við hliðina er 3,37 ha. Það land er skráð ræktunarland.
Töluverður skógur er á landinu næst húsinu, mest fura, greni og aspir. Gott ræktunarland. Landið er að hluta nokkuð blautt.(austurhluti landsins)
Ekinn er Kampholtsvegur til suðurs út frá þjóðvegi 1 rétt við Skeiðavegamót og slóði til hægri út frá honum að húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið einkaskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.