Skarðshlíð 14 - 301

603 Akureyri

Ásett verð: 50.900.000 kr.

Skarðshlíð 14 - 301
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
94,7000000953674 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1965
Fermetraverð
537.487 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Skarðshlíð 14 - 301

Um er að ræða bjarta fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í austurenda í fjölbýlishúsi í Þorpinu. Eignin er skráð samtals 94,7 fm. að stærð þar af er geymsla í sameign 5,4 fm.

Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi.

Anddyri með parket á gólfi, opið fatahengi og skúffur fyrir utan baðherbergi.

Stofa björt með parket á gólfi, útgengi út á svalir til suðurs úr stofu með góðu útsýni.

Eldhús með parket á gólfi, eldhúsið var endurnýjað 2020, gott vinnupláss, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél.

Baðherbergi einnig endurnýjað 2020, flísar á gólfi og veggjum að hluta. Sturta með glerskilrúmi, upphengt wc, lítil innrétting við vask, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð.

Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og er stór skápur í einu þeirra, innbyggður opinn skápur í einu herberginu og einfaldur skápur í einu þeirra.

Sér geymsla í sameign er skráð 5,4 fm. að stærð.

Annað:

- Ljósleiðari

- Dyrasími hefur verið endurnýjaður

- Eldhús og baðherbergi endurnýjað 2022

- Þak málað 2025

- Nýjir gluggar í sameign 2025

- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar úti og inn í hús. (2021) Þá var stétt steypt framan við hús, eftir að klára smá frágang við malbikun að stétt.

- Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og fl.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

greta@byggd.is

halla@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955