Kléberg 15, Afar góð staðsetning

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Kléberg 15, Afar góð staðsetning
Tegund
Einbýlishús
Stærð
192,900001525879 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1975
Fermetraverð
466.045 kr.

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Kléberg 15, Þorlákshöfn. Alveg einstaklega skemmtilega staðsett 145m2 steinsteypt einbýlishús með 4 góðum svefnherbergjum og 48m2 bílskúr með 2 aksturshurðum. Innangengt er í ca 36m2, flísalagðan sólskála úr gleri og plexigleri, þaðan sem utangengt er á verönd um nýja rennihurð.

Húsið stendur í grónu hverfi og á bak við það er stórt, grænt svæði. Baklóðin snýr í hásuður. Húsið er staðsett örstutt frá grunn- og leikskóla og íþróttasvæði.

*Skipti á minni fasteign skoðuð *

* Hægt er að fá allar upplýsingar og fá bóka skoðun í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Eignin skiptist svo:

* Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

* 4 svefnherbergi. Stórir fataskápar eru í hjónaherbergi.

* Mjög stór stofa og borðstofa með suður-gluggum.

* Sjónvarpsstofa. Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta sjónvarpsstofunni í svefnherbergi.

* Rúmgott eldhús með góðum borðkrók og flísum á gólfi.

* Mjög gott þvottahús og geymslu með innréttingu og vinnuborði og flísum á gólfi. Utangengt er úr þvottahúsinu.

* Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari og sturtu , flísum á gólfi og veggjum.

* Bílskúrinn er tvöfaldur og með 2 aksturshurðum. Á einfaldan hátt er hægt að gera góða geymslu í skúrnum.

* Garðurinn er uppgróinn og með góðum sólpall á baklóð. Baklóðin snýr í há-suður.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar: [link]

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Super 1 pizza (facebook: super 1 pizza)

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours ([link] er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á [link] og á [link]