Kirkjuvellir 8A

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Kirkjuvellir 8A
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
80,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
806.211 kr.

Lýsing

Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð með suðursvölum og góðu útsýni í eftirsóttu hverfi á Völlunum í Hafnarfirði. Bjart og opið alrými með útgengi á suðursvalir.

Tvö svefnherbergi með góðu skápaplássi.

Sérinngangur og 5,6 m² sérgeymsla.

Frábær kostur fyrir fyrstu kaupendur eða litlar fjölskyldur, þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu.

Birt stærð eignar er 80,2 m² samkv. HMS.

Nánari upplýsingar veita:

Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í opnu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, suðursvalir og sérgeymslu. Vandaður innanhússfrágangur með gólfefnum og innréttingum frá Parki Interiors.

Nánari lýsing eignar

Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.

Eldhús: Fallegt eldhús með ljósri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Innbyggður bakarofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og uppþvottavél. Gluggi er yfir eldhúsvaski og harðparket á gólfi.

Stofa / borðstofa: : Bjart og rúmgott alrými sem tengist eldhúsinu á opinn og skemmtilegan hátt. Stórir gluggar veita góða náttúrulega birtu og úr stofu er útgengt á suðursvalir með góðu útsýni. Harðparket á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi: Bjart herbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi: Fallegt og snyrtilegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, með ljósri viðarinnréttingu og góðu skápaplássi. Sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og handklæðaofn. Innan baðherbergis er jafnframt aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Svalir: Suðursvalir með góðu útsýni og útgengi frá stofu.

Sérgeymsla: 5,6 m² sérgeymsla staðsett í sameign hússins.

Sameign: Í húsinu er lyfta ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sameiginleg bílastæði eru á lóðinni og hleðsluaðstaða fyrir rafbíla.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.