Kuggavogur 19

104 Reykjavík

Ásett verð: 76.900.000 kr.

Kuggavogur 19
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
99,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Fermetraverð
770.541 kr.

Lýsing

*BÓKIÐ SKOÐUN - Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-88 27 / aj@palssonfasteignasala.is *

-Aukin lofthæð

-Einkastæði í bílakjallara

-Gólfhiti á baðherbergi

-Eldhús með eyju

Ósköp vel skipulögð þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð.

Íbúðin er mjög falleg og stílhrein og skráð 99,8 fm samkvæmt HMS.

Öll rými eru rúmgóð, smekklega hönnuð og með aukinni lofthæð.

Húsið er nýlega klætt að utan og gler á framhlið hússins er með fallegri dekkingu.

Alrýmið og svefnherbergi eru parketlögð með flæðandi parketi en votrými eru fallega flísalögð.

Sérlega snyrtileg sameign með myndavéladyrasími í anddyri.

Flísalagður inngangur með lyftu og teppalögðum stigagangi.

Eignin hentar vel fyrir fjölbreyttan hóp kaupenda sem leitar að notalegu og stílhreinu heimili í nýlegu og góðu umhverfi.

Nánari upplýsingar veitir:

Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 / aj@palssonfasteignasala.is

Lýsing íbúðar:

Gengið er inn í stóra parketlagða forstofu með góðum fataskápum sem klæða heilan vegg.

Á hægri hönd er stórt og sérstaklega notalegt baðherbergi með gólfhita undir sjarmerandi flísum. Walk-in sturta með loftháu sturtugleri og góðum blöndunartækjum. Spegill með innfelldri lýsingu er fyrir ofan vask sem er á fallegri hvítri innréttingu með góðu skúffuplássi. Upphengt salerni. Einnig eru upphengdir skápar fyrir ofan þvottaaðstöðu en tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara eru inn á rúmgóðu baðherberginu.

Inn af forstofu er stórt hol sem notað er fyrir borðstofu .

Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með steinborðplötu , ofn í vinnuhæð og innfelldum ísskáp . Eyja tengir saman alrýmið og er með góðu skúffuplássi, steinborðplötu með sætisaðstöðu, spanhelluborði og upphengdum háf með lýsingu.

Stofan er rúmgóð og úr alrýminu er útgengt út á kósý svalir út um fallega rennihurð.

Svefnherbergin eru tvö . Bæði með góðu skápaplássi og annað með heilan skápavegg.

9,8 fm sérgeymsla með aukinni lofthæð er í kjallara ásamt stórri sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.

Einkabílastæði er í bílakjallara með möguleika til að setja upp hleðslustöð.

Staðsetningin hentar vel fyrir bæði náttúru og tengingu við stofnbrautir, bæði Sæbraut og Miklubraut.

Göngufært er yfir á smábátahöfnina og útivistasvæðið Geirsnef.

Stutt í alla helstu þjónustu, bæði við Holtagarða og upp í Skeifu.

Laugardalur einnig skammt undan og með nýju göngubrúnni þarf ekki að fara yfir umferðarþungar götur til að fara þangað.

Verið velkomin og undirbúin fyrir að láta heillast.

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.