Baughamar 7 Íbúð 508

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 60.900.000 kr.

Baughamar 7 Íbúð 508
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
63,4 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
960.568 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir: Baughamar 7 - 221 Hafnarfjörður - íbúð 508. Glæsileg 2ja herbergja 63.4 m2 íbúð á 5. hæð í nýju Svansvottuðu fjölbýlishúsi í Hamraneshverfinu. Vel skipulögð íbúð sem afhendist fullbúin með gólfefnum, sér þvottahús innan íbúðar.

5% útborgun með hlutdeildarláni HMS.

Skipulag: Alrými, þvottahús, baðherbergi, herbergi, verönd, geymsla.

Nánar: Íbúðin er afhent með gólfefnum og er parketlögð, að undanskyldum votrýmum sem eru flísalögð. Fataskápar í forstofu og svefnherbergjum eru frá Parka. Eldhúsinnréttingar eru frá Parka. Vaskur og blöndunartæki eru frá Tengi. Í innréttingu er Electrolux spanhelluborð, Electrolux veggofn með blæstri og Electrolux veggháfur. Ísskápur og uppþvottavél frá Electrolux. Öll tæki uppfylla kröfur svansvottunar varðandi orkunotkun. Borðplötur í eldhúsi og baði eru frá Parka. Á baðherbergi eru gólf og veggir flísalagðir, innrétting er frá Parka. Speglaskápur er yfir vaski, salern með hæglokandi setu. Innbyggð blöndunartæki í sturtu eru frá Tengi, gler er með annarri hlið sturtu. Gólf í þvottahúsi er flísalagt, niðurfall er í gólfi.

Annað: Íbúðinni fylgir sér geymsla 3,4 m 2 staðsett á jarðhæð í sameing hússins, sameiginleg hjóla - og vagnageymsla. Stæði í bílakjallara eru undir húsinu. Stæðin eru seld eða leigð eftir atvikum. Gert er ráð fyrir að koma megi fyrir rafmagnshleðslu við bílastæðin. Flokkur: nýbygging

Sjá nánar um Baughamar 5-11 hér

Sjá nánar um Hlutdeildarlán hér

Sjá nánar um Svansvottun nýbygginga hér

Sjá nánar um Hamraneshverfið hér.

​​​​ Nánari upplýsingar veita:

-Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is

-María Mjöll í löggiltur fasteignasali í síma 866 3934 eða maria@fastborg.is

-Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali í síma 868-2222 eða victor@fastborg.is

Sjá einnig:

fastborg.is/

Smelltu hér til að fylgjast með BORG á Facebook

Smelltu hér til að fylgja BORG á Instagram

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.

BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði