Víðimelur 32

107 Reykjavík

Ásett verð: 49.900.000 kr.

Víðimelur 32
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
55,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1939
Fermetraverð
894.265 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Þriggja herbergja 55,8 fm kjallaraíbúð í mikið endurnýjuðu húsi við Víðimel 32 í Vesturbænum. Um er að ræða steinsteypt hús byggt árið 1939. Mjög góð fyrstu kaup. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og tómstundir. M.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Háskóla Íslands og Háskólabíó. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:

Kjallaraíbúðin er skráð 55,8 fm og samkvæmt teikningum samanstendur hún af baðherbergi, eldhúsi með eldri innréttingu, stofu og tveimur svefnherbergjum. Sameiginlegt þvottahús er í sameign í kjallara. Sameiginlegur inngangur er á jarðhæð. Aðgengi að baðherbergi íbúðar er frá sameign en með nokkuð einföldum hætti væri hægt að opna inn í íbúðina. Húsið hefur hlotið mikið og gott viðhald en íbúðin sjálf þarfnast einhverra endurbóta.

Framkvæmdir og viðhald

Húsið var endursteinað, gluggar endurnýjaðir og ný stétt sett í kringum húsið á árunum 2024-2025. Einnig voru gerðar endurbætur á frárennsliskerfi og snjóbræðslukerfi komið fyrir. Nýja frárennsliskerfið þjónar öllu húsinu að undanskildu salerni og eldhúsi í kjallara. Lagnaaðstaða er þó til staðar fyrir tengingu þess við nýja kerfið. Endurnýjað frárennsliskerfi nær út í gangstétt. Auk þess voru nýjar hitalagnir lagðar árið 2020. Hitalagnir í lagnarými í kjallara voru endurnýjaðar og komið fyrir varmaskiptakerfi fyrir heitt neysluvatn á öllum hæðum og útirýmum.

Nánari upplýsingar veitir:

Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / lilja@eignamidlun.is ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook