Hverabraut 18

840 Laugarvatn

Hverabraut 18
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
2383,60000610352 m²
Herbergi
31
Svefnherbergi
26
Baðherbergi
11
Byggingarár
1968

Lýsing

Hverabraut 16-18, Laugarvatni, Bláskógabyggð.

Sveitarfélagið Bláskógabyggð leitar eftir kauptilboðum í fasteignina Hverabraut 16 – 18, landeignanúmer L227720. Lóðin, sem er leigulóð, er 3.632 m2 að stærð og á henni er 1,394 m2 bygging sem hýsti fyrrum heimavist íþróttakennaraskólans á Laugarvatni.

Staðsetning byggingarinnar er einstök. Fasteignin stendur á gullfallegum stað þar sem óviðjafnanlegt útsýni er yfir Laugarvatn og nágrenni þess. Laugavatn er við Gullna hringinn og felast því mikil tækifæri í uppbyggingu á svæðinu.

Byggingin samanstendur af eftirfarandi rýmum:

2. hæð. 12 svefnherbergi, eldhús, salernis- og sturtuaðstaða og setustofur. Tvennar svalir.

1. hæð. 11 svefnherbergi, stórt eldhús og matsalur, minna eldhús, salernis- og sturtuaðstaða, starfsmannaaðstaða og setustofa. Svalir og útiverönd.

Kjallari. 3 svefnherbergi, 10 geymslur, þrír fjölnotasalir, salernis- og sturtuaðstaða, gufubað, búnings- og starfsmannaaðstaða.

Fasteignamat 2026 er 245.600.000 kr og brunabótamat 653.100.000 kr. Húsið er steinsteypt, byggt 1968.

Teikningar verða sendar áhugasömum kaupendum. Deiliskipulag svæðisins er frá 2021 og hefur verið gerð ein breyting á því árið 2023. Stækkunarmöguleikar byggingarinnar á lóðinni án deiliskipulagsbreytingar eru 422 m2.

Vakin er athygli á að rakaskemmdir hafa greinst á nokkrum stöðum í húsinu og þörf er á endurbótum. Ástandsmöt og greiningar frá sérfræðingum liggja fyrir og eru aðgengilegar áhugasömun kaupendum.