Skarðshlíð 34 301

603 Akureyri

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Skarðshlíð 34 301
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
109 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1969
Fermetraverð
549.541 kr.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010 .

Skarðshlíð 34 – 301 - Mjög falleg og talsvert endurnýjuð 4 herbergja 109 fm íbúð á þriðjuhæð (efstu) með góðu útsýni í Glerárhverfi á Akureyri.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og fataherbergi innan íbúðar ásamt sér geymslu í sameign.

Forstofa og hol eru með korkflísum á gólfi. Á gangi er fataherbergi sem er lokað af með rennihurð, þar eru korkflísar á gólfi og fatahengi.

Eldhús er með hvítri innréttingu með dökkum borðplötum og dökkum skápum eftir heilum vegg. Gott skápapláss, stæði fyrir uppþvottavél og borðaðstaða með barstólum. Korkflísar eru á gólfi.

Stofa og borðstofa eru í fallegu opnu rými með harðparketi á gólfi og með fallegu útsýni.

Svefnherbergi eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi. Í einu herbergi er stór hvítur fataskápur og úr öðru er gengið út á svalir sem snúa til suðurs.

Baðherbergi er með hvítri innréttingu, sturtu með glervegg og handklæðaofni. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.

Þvottahús er rúmgott með stórum glugga, innréttingu og hillum. Flísalagt gólf.

Mjög rúmgóð sér geymsla er í sameign í kjallara hússins.

- Stutt í verlsun, þjónustu, íþróttasvæði, skóla og leikskóla.

- Útsýni er úr íbúð

- Íbúð talsvert endurnýjuð.

- Raflagnir hafa verið endunýjaðar að hluta.

- Skipt hefur verið um rofa og tengla.

- Nýleg eldhúsinnrétinng að hluta og baðinnrétting.

- Rúmgott þvottahús innan íbúðar

- Snyrtileg sameign

- Stór geymsla í sameign

- Fallegur garður

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.