Urðarvegur 20

400 Ísafjörður

Ásett verð: 81.900.000 kr.

Urðarvegur 20
Tegund
Raðhús
Stærð
236,9 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1970
Fermetraverð
345.715 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - kynnir til sölu - Urðarvegur 20 Ísafirði - Töluvert endurnýjað, stórt og rúmgott raðhús á tveimur hæðum með bílgeymslu.

Á neðri hæð er forstofa, eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla, kyndiklefi, hol með stiga upp á efri hæð.

Á efri hæð er stórt opið eldhús og borðstofa, stór stofa með útgangi á sólpall, svefnálmugangur, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.

Bílskúr telst vera 28,6 m² að stærð.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Eitt svefnherbergi á neðri hæðinni, parket á gólfi. Uppgert baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, góð sturta og hiti í gólfi.

Rúmgott þvottahús. Geymsla með hillum inn af þvottahúsi. Kyndiklefi - nýttur sem geymsla í dag.

Hol með parketi á gólfi, hringstigi þar upp á efri hæð.

Efri hæð:

Opið eldhús og borðstofa, parket á gólfi, ágæt innrétting og eyja í eldhúsi, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.

Rúmgóð stofa og sjónvarpsstofa með parketi, útgengt út stóran og góðan sólpall, 6 manna heitur pottur fylgir.

Svefnherbergisálma með tveimur fataskápum og parketi á gólfi.

Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.

Þrjú minni herbergi með parketi á gólfum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu og ágæt innrétting, handklæðaofn, hiti í gólfi.

Bílskúr:

Bílskúr er skráður 28,6 m² að stærð, steypt gólf, vinnubekkur, bílskúrshurð er timburhurð á braut.

Búið er að setja upp varmaveitukerfi í húsinu, varmaskiptir er í bílskúr.

Hellulagt bílastæði og stétt fyrir framan hús.

Sólpallur og heitur pottur frá 2024.

Framkvæmdir fyrri eiganda:

Þak á húsinu hefur verið endurnýjað í kringum 2015.

Eldhús líklega uppgert í kringum 2010 sem og bæði baðherbergi.