Austurhólar 10

800 Selfoss

Ásett verð: 56.900.000 kr.

Austurhólar 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
83,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
683.894 kr.

Lýsing

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Austurhólar 10 íb. 401, Selfossi. Góð þriggja herbergja nýleg 83,2 fm íbúð með sérinngangi af svölum. Gott útsýni. Frábær fyrstu kaup.

Falleg endaíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi byggðu 2021 af traustum verktaka. Íbúðin er 3ja herbergja 83,2 fm og er geymsla/þvottahús, innan íbúðar. Glerlokun á svalagangi við innganginn í íbúðina. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari lýsing:

Forstofa: með flísum á gólfi og fataskáp.

Eldhús/stofa: í opnu rými með snyrtilegri L-laga eldhúsinnréttingu og innbyggðri ledlýsingu undir efri skápum. Bakaraofni í vinnuhæð, háfur og helluborð. Innbyggð uppþvottavél . Harðparket á gólfi. Björt stofa með útgengi út á útsýnissvalir

Hjónaherbergi: með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.

Svefnherbergi: með harðparketi og skáp.

Baðherbergið: er rúmgott, innrétting með vaski og speglaskáp, "walk in " sturtu, og handklæðaofni.

þvottahús/geymsla: er innan íbúðar.

Stöndugt húsfélag.

Um húsið:

Húsið er byggt af Pálmatré. Í húsinu eru 35 íbúðir ásamt sameign á jarðhæð en geymslur eru allar inni í íbúðum. Húsið er byggt 2021, staðsteypt og klætt að utan með sléttu- og báruðu áli í bland við viðarklæðningu úr bandsagaðri furu. Gluggar eru ál/tré. Lóðin er snyrtileg, hiti er í steyptum stéttum og sérstætt sorpskýli er á lóðinni. Gott stigahús með lyftu og sérinngangur í íbúð af svölum. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.

Bílahleðslustöðvar frá Ísorku eru komnar á bílastæðin.

Austurhólar 10 eru í austurhluta bæjarins, nánar tiltekið í Dísarstaðalandi. Þaðan er stutt í alla helstu þjónustu og nýbyggður leikskóli er á næstu lóð við húsið.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.