Eyrarholt 6

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Eyrarholt 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
112,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1992
Fermetraverð
664.007 kr.

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallega, bjarta og vel skipulagða 3-4 herbergja 112,8 fm endaíbúð á 3. hæð í þessu vinsæla lyftuhúsi stutt frá Hvaleyrarholtsgolfvellinum (Keilir). Að auki fylgir gott stæði í bílahúsi. Frábært útsýni. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Glæsileg innkoma/forstofa í sameign. Eignin er laus strax.

Tvær íbúðir á hæðinni, sameign öll til fyrirmyndar, þ.m.t inngangurinn/forstofan í húsið. Sólstofa og yfirbyggðar s-vestur svalir.

Eignin skiptist m.a. þannig: Forstofa með skáp, hol, björt stofa og borðstofa, fallegt bjart eldhús með borðkrók ig innangengt þaðan líka í stofnuna og borðstofuna, falleg sólstofa og þaðan gengt á yfirbyggðar s-svalirnar, r úmgott hjónaherbergi með skáp, og annað gott herbergi/skrifstofa með skáp,rúmgott baðherberg með baðkar og sturtuklefa, flísar í hólf og gólf, gluggi og fín ljós innrétting, gott þvottaherbergi með skolvaski.

Parket á gólfum.

Snyrtileg góð sameign, sér geymsla í sameign,

stæði í bílahúsi, þvottaðstaða fyrir bíla.

Gott húsfélag.

Einn eigandi frá upphafi.

Fasteignamat næsta árs er 76.250.000 !

Þetta er áhugaverð eign til að skoða frekar !

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðasrson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og

Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is