Drekavellir 4

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 112.900.000 kr.

Drekavellir 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
153,1 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
737.427 kr.

Lýsing

Drekavellir 4 - Hafnarfirði

Bókið skoðun í síma 866-7070 eða á gudny@stofanfasteignir.is

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir einstaklega rúmgóða og bjarta 5 herbergja íbúð við Drekavelli 4, á Völlunum í Hafnarfirði.

Sérinngangur er í íbúðina sem er á 2.hæð og fylgir merkt bílastæði.

Viðhaldslítið hús með aðeins 4 íbúðum.

Sérinngangur

Merkt bílastæði

Hleðslustöð við húsið

Yfirbyggðar svalir með svalalokun og gólfhita

Tengi og niðurfall fyrir heitan pott á svölum

Snjóbræðsla í stiga og við húsið

Fjögur svefnherbergi

Baðherbergi og gestasalerni

Hangandi gardínur frá Álnabæ í öllum gluggum fylgja ásamt myrkvunargardínu í hjónaherbergi

Öll ljós og ljósakrónur fylgja

Öryggiskerfi fylgir

Hljóðeinangrandi loftdúkur í öllum rýmum íbúðar (möguleiki að skipta út loftadúk fyrir hvítan ef óskað er eftir því)

Gólfhiti

Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi.

Gangur / hol með parketi á gólfi. Fallegur og glæsilegur gangur þar sem vítt er á milli veggja.

Fataherbergi með góðum skápum. Var áður geymsla sem breytt var í fataherbergi.

Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með aukinni lofthæð og stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt úr stofu á rúmgóðar svalir með svalalokun og gólfhita.

Eldhús er með hvítri innréttingu frá Kvik, tveir bakarofnar í vinnuhæð, helluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.

Þrjú rúmgóð herbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting með tveimur handlaugum, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar. Tengi fyrir þvottavélar á baðherbergi.

Gestasalerni með innréttingu, handlaug og upphengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. (Var áður þvottahús en breytt í gestasalerni).

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Endurbætur skv.seljanda árið 2023:

Rafmagn endurnýjað að miklu leyti

Hljóðeinangrandi loftdúkur í allri íbúðinni

Baðherbergi endurnýjað

Gestasalerni bætt við þar sem áður var þvottahús

Gólfhiti settur í svalir og þær flísalagðar

Tengi og niðurfall sett fyrir heitan pott

Loftræsting staðsett í eldhúsi

Öryggiskerfi sett upp

Rafmagnsarinn settur upp.

Þetta er björt og rúmgóð eign á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, verslanir og helstu þjónustu.

Eign sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070 , gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080 , atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.