Ormsvöllur 17 mhl 01

860 Hvolsvöllur

Ásett verð: 98.500.000 kr.

Ormsvöllur 17 mhl 01
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
295,6 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2026
Fermetraverð
333.221 kr.

Lýsing

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.

ATVINNUHÚSNÆÐI VIÐ ORMSVÖLL 17 Á HVOLSVELLI.

Um er að ræða endabil matshluta nr. 0101 í fjöleignaratvinnuhúsnæði í byggingu. Áætlaður afhendingartími er síðla árs 2025.

Stærð matshlutans er 295,6 fm og verð kr. 98.500.000,-

Skilalýsing

- Burðavirki hússins er límtré.

- Vegg-og þakeininga eru samlokueiningar með steinullar einangrun.

- Hurðir og gluggar eru úr álprófílum.

- Lofthæð í húsinu eru tæpir 6 metrar.

- Breidd og hæð innkeyrsluhurða er 3,6 metrar.

- Innkeyrsluhurðin er með frágengnum hurðamótor.

- Opnanlegur gluggi er fyrir ofan inngöngudyr.

- Ekki verður sett upp salernisaðstaða en lögnum verður komið fyrir svo möguleiki fyrir salernisaðstöðu er til staðar.

- Húsið er hitað með gólfhitakerfi.

- Snjóbræðsla er meðfram húsinu (ca. 1.0m ræma umhverfis húsið).

- Neysluvatnskerfi hússins er varmaskiptakerfi.

- Neysluvatnslagnir eru plastlagnir í gólfplötu.

- Frárennsli frá hverju bili er tvískipt, annarsvegar gólfniðurfall og skolvaskur sem tengjast olíuskilju og hins vegar stútar fyrir salerni sem tengjast inn á skólplagnir bæjarins án viðkomu í olíuskilju.

- Rakaheldir lampar, 6 stk. fylgja bilinu ásamt út- og neyðarlýsingu.

- Greinatafla með þriggja fasa 40A kvíslásamt 16A og 32A þriggja fasa tenglum ásamt 16A einfasa tenglum við töflu.

- Pláss verður í greinatöflu í hverju bili til að koma fyrir vari fyrir bílhleðslu.

- Rör fyrir fjarskipti/ljósleiðara að tæknirými tilbúið til að draga í fjarskiptastreng.

- Húsnæðið er með lýsingu yfir iðnaðarhurð að hverju bili tengt inn á aðaltöflu.

- Sameiginlegt tæknirými lagna er á miðjum austurgafli hússins.

- Hitun húss er sameiginleg en hvert bil hefur sér rafmagnsmæli.

- Gatnagerðargjald og tengigjöld fyrir rafmagn- hita og kalt vatn eru greidd. Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem lagt er á eftir lokaúttekt og nemur 0,3% af brunabótamati.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:

Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is