Álalind 10 (401)

201 Kópavogur

Ásett verð: 179.000.000 kr.

Álalind 10 (401)
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
188 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2017
Fermetraverð
952.128 kr.

Lýsing

Háborg fasteignasala og Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, kynna einstaklega bjarta og rúmgóða þakíbúð á 4. og efstu hæð við Álalind 10 í Kópavogi.

Íbúðin er í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá árinu 2017 með aðeins 11 íbúðum. Eignin einkennist af mikilli lofthæð, stórum gluggum og rúmgóðri stofu. Allar innihurðir íbúðarinnar eru í aukinni hæð. Íbúðin er með glæsilegri hjónasvítu, 76,8 fm þaksvölum til suðurs og 12,9 fm svölum til vesturs. Eigninni fylgir stórt sérbílastæði í bílageymslu.

Íbúðin er skráð 177,4 fm og sérgeymslan 10,6 fm, samtals 188 fm. Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.

Allar frekari upplýsingar gefur Katla Hanna Steed lgf s:822-1661 og katla@haborg.is

Nánari lýsing

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Hurð skilur forstofuna frá öðrum rýmum íbúðarinnar.

Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum. Þar er gott pláss fyrir setustofu og stórt borðstofuborð.

Eldhús er opið inn í stofu og borðstofu. Þar er hvít HTH-innrétting með steinborðplötum og stór eyja með helluborði. Í eldhúsinu eru innbyggður AEG-bakaraofn, minni AEG-ofn og AEG-uppþvottavél. Frá eldhúsi er gengið út á vestursvalir.

Hjónasvíta er með rúmgóðu og björtu hjónaherbergi, stórum gluggum og beinu útgengi á suðursvalir. Inn af hjónaherberginu eru fataherbergi með góðu skápaplássi og sérbaðherbergi. Á baðherberginu eru flísar á gólfi og veggjum, innrétting með steinborðplötu, vegghengt salerni og sturta með gleri og innbyggðum sturtutækjum.

Tvö önnur svefnherbergi eru björt og bæði með parketi á gólfi og fataskáp.

Baðherbergi er flísalagt og með gólfhita. Þar er innrétting með steinborðplötu, vegghengt salerni, handklæðaofn og sturta með gleri og innbyggðum sturtutækjum.

Þvottahús er í sér rými með innréttingu og tengingum fyrir þvottavél.

Suðursvalir eru 76,8 fm og með góðu plássi fyrir útihúsgögn, borðaðstöðu og sólbekki. Gengið er út á svalirnar úr hjónaherberginu.

Vestursvalir eru 12,9 fm með útgengi frá eldhúsi.

Sérgeymsla íbúðarinnar er 10,6 fm.

Sérbílastæði í bílageymslu er rúmgott og staðsett beint við bílskúrshurðina. Við stæðið er hleðslustöð fyrir rafbíla. Við húsið eru einnig næg bílastæði fyrir íbúa og gesti.

Álalind 10 er í hinu vinsæla Lindahverfi í Kópavogi, þar sem stutt er í verslun, þjónustu og helstu samgönguleiðir. Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast rúmgóða þakíbúð á eftirsóttum stað, með gott pláss til að njóta sólarinnar, borða úti og taka á móti gestum á stórum þaksvölum til suðurs.

Bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá Kötlu Hönnu Steed, löggiltum fasteignasala, í síma 822-1661 eða með tölvupósti á katla@haborg.is .

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800 fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.