Hafnargata 73

230 Reykjanesbær

Ásett verð: 44.900.000 kr.

Hafnargata 73
Stærð
75,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1944
Fermetraverð
595.491 kr.

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Hafnargata 73, 230 Reykjanesbær

Þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í tvíbýli við Hafnargötu 73. Núverandi skipulag eignarinnar samanstendur af tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu/gangi. Eignin hefur sérinngang og hefur verið endurnýjuð að hluta á undanförnum árum, meðal annars rafkerfi, lagnir, gluggar, útidyrahurð og innri frágangur. Á lóðinni stendur jafnframt um 14 m² einangraður geymsluskúr sem fylgir við sölu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 75,4 m² . Fastanúmer eignarinnar er F2088135. Eigninni fylgir allt það sem henni tilheyrir, þar með talin lóðar- og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:

Forstofa/gangur liggur miðsvæðis í eigninni og tengir saman helstu rými hennar.

Eldhús er með blárri og dökkri innréttingu, vinnuborði, bakaraofni, helluborði og flísum milli efri og neðri skápa. Eldhúsið hefur verið stækkað inn í rými sem er skráð sem geymsla.

Stofa er rúmgóð með stórum glugga.

Hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskápum og gluggum á tvo vegu.

Svefnherbergi er rúmgott með glugga.

Baðherbergi er með flísalögðu gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni, vaski, speglaskáp og handklæðaofni. Gólfhiti er á baðherbergi.

Þvottahús er með hillum og góðu vinnuborði.

Parket er á meginrýmum eignarinnar en flísar í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.

Á lóðinni stendur frístandandi, um 14 m² einangraður geymsluskúr sem byggður var árið 2024. Skúrinn er ekki hluti af skráðum 75,4 m² eignarinnar.

Framkvæmdir að sögn seljenda:

2024 : Um 14 m² einangraður geymsluskúr var byggður á lóðinni.

2023 : Rafkerfi var endurnýjað, þar á meðal rafmagnstafla, og nýtt dregið í lagnir ásamt því að tenglum var fjölgað. Vatnslagnir, frárennslislagnir, ofnar og lagngrind voru endurnýjuð og gólfhiti lagður á baðherbergi. Gluggar og útidyrahurð voru endurnýjuð. Einnig var endurnýjað gólfefni og innihurðir ásamt fataskápum í hjónaherbergi.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér .

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat .

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | [link] | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00