Berjaás 8

805 Selfoss

Ásett verð: 94.900.000 kr.

Berjaás 8
Tegund
Sumarhús
Stærð
145 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Fermetraverð
654.483 kr.

Lýsing

Fullbúið og glæsilegt 145 m² sumarhús á stórri eignalóð í Grímsnesi

Berjaás 8 er nýtt, fullbúið og einstaklega vel skipulagt sumarhús sem hentar vel til heilsársnýtingar. Eignin stendur á 6.660 m² eignalóð í fallegu og friðsælu umhverfi í landi Búrfells 2, aðeins um 80 km frá Reykjavík.

Húsið er 145 m², byggt árið 2025 og tilbúið til afhendingar. Það skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, bjart og opið eldhús- og stofurými, forstofu og geymslu-, þvotta- og tæknirými.

Í alrýminu er mikil lofthæð og gólfsíðir gluggar sem hleypa ríkulegri birtu inn og tengja innirýmið fallega við umhverfið. Úr stofunni er gengið beint út á stóran viðarpall með heitum potti, þar sem fjölskyldan getur notið kyrrðar og náttúru allt árið um kring.

Hjónaherbergið er rúmgott og með sérbaðherbergi. Annað baðherbergið er vel staðsett í miðju hússins og þaðan er einnig útgengt á pallinn. Tvö önnur góð svefnherbergi gera eignina hentuga fyrir fjölskyldur, gesti eða þá sem vilja nýta eitt herbergi sem vinnuaðstöðu.

Húsið er byggt á steyptri plötu með gólfhita. Það er klætt með hvítu bárujárni og dökkri timburklæðningu, með vönduðum ál- og timburgluggum. Sérstaklega hefur verið vandað til rakavarna við sökkla og húsið er hannað með íslenskar aðstæður í huga.

Myndavélakerfi, þjófavörn og heitur pottur fylgja eigninni.

Helstu kostir:

* Fullbúið og tilbúið til afhendingar

* 145 m² á einni hæð

* 6.660 m² eignalóð

* Þrjú rúmgóð svefnherbergi

* Tvö baðherbergi

* Bjart alrými með gólfsíðum gluggum

* Gólfhiti

* Stór viðarverönd og heitur pottur

* Myndavélakerfi og þjófavörn

* Um 80 km frá Reykjavík

* Stutt í afþreyingu og helstu þjónustu á Suðurlandi

Berjaás 8 er eign fyrir þá sem vilja nýtt, rúmgott og fullbúið hús þar sem hægt er að byrja að njóta strax, án framkvæmda eða frekari frágangs.

Nánari upplýsingar veita:

Evert Guðmundsson Lgf. í síma 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.