Fellsmúli 6

108 Reykjavík

Ásett verð: 71.500.000 kr.

Fellsmúli 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
117,3 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964
Fermetraverð
609.548 kr.

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og rúmgóða 4ra til 5 herbergja íbúð á 4. hæð (efsta hæð) í snyrtilegu fjölbýli með gott útsýni. Á undanförnum árum hefur húsfélagið farið m.a. í að endurnýja rafmagnstöflu í sameign. Þá hafa kranar að hluta verið endurnýjaðir í hitakompu. Einnig gangstétt endurnýjuð og hiti lagður í tröppur og stétt. Ásamt því að sett hefur verið upp rafbílahleðsla.

Innan íbúðar hefur seljandi endurnýjað baðherbergi og eldhús.

Eignin er í næsta nágrenni við leikskóla, grunnskóla, Miðbær og Austurver verslunarkjarnar, Skeifan, Kringlan, brú yfir Miklubraut o.fl. Staðsetning er miðsvæðis og stutt í alla þjónustu og verslun.

Íbúðin er 112,6 fm (merkt 03-0401) og geymslan er 4,7 fm (merkt 03-0003) samtals er eignin skráð 117, 3 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með flísum á gólfi að hluta og parketi. Geymsluskápur er við inngang.

Hol er með parketi á gólfi.

Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðvestur svalir.

Eldhús er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting og flísar á milli efri og neðri skápa.

Svefnherbergin eru 4 og eru með parketi á gólfi og skápum.

Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, baðkar með sturtu, upphengt wc, skápar undir og yfir vask.

Þvottahús er á baðherbergi, tengi fyrir þvottavél.

Geymsla er í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.