Lyngbrekka 8

200 Kópavogur

Ásett verð: 144.900.000 kr.

Lyngbrekka 8
Stærð
210,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1963
Fermetraverð
688.688 kr.

Lýsing

Miklaborg kynnir bjarta og mikið endurnýjaða eign í tvíbýlishúsi við Lyngbrekku 8 í Kópavogi, ásamt bílskúr. Eignin er samtals 210,4 fm og skiptist í 113,6 fm íbúðarhæð, 40 fm bílskúr, 37,4 fm geymslu sem hefur verið breytt í stúdíóíbúð og 19,4 fm geymsluskúr.

Íbúðarhæðin er fjögurra herbergja og býður upp á forstofu, eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og stórar suður­svalir. Gólfhiti er í eigninni. Eignin er á frábærum stað í rótgrónu hverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

*Seljandi á húsið í heild og því er möguleiki á að kaupa einnig aðra íbúð í húsinu. Hún er 49,7 fm, þriggja herbergja og nýlega endurnýjuð, með sérinngangi og sérstöku fastanúmeri* Sjá hér

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing

Forstofa: Björt forstofa með fataskápum og skóhillum. Parketflísar á gólfi.

Eldhús: Nýlega endurnýjuð eldhúsinnrétting og tæki. Steinn á borðum, tveir ofnar, búrskápur með rennihurð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Fallegt útsýni úr eldhúsinu og parketflísar á gólfi.

Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott rými með parketflísum á gólfi.

Baðherbergi: Nýlega endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er walk-in-sturta, upphengt salerni, hvít innrétting, speglaskápar með lýsingu og opnanlegur gluggi.

Þvottahús: Rúmgott þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hvítum fataskáp og parketflísum á gólfi. Þaðan er gengið út á stórar suðursvalir og niður tröppur í garðinn.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með gluggum á tvo vegu og hvítum fataskápum. Parketflísar á gólfi.

Svefnherbergi: Annað herbergið er með gluggum á tvo vegu og fataskáp. Hitt er með fataskáp. Parketflísar eru á gólfum beggja herbergja.

Bílskúr: Snyrtilegur 40 fm bílskúr með 3fasa rafmagni. Hluti hans hefur verið hólfaður af og nýttur sem geymsla.

Geymsluskúr: Köld 19,4 fm geymsla með rafmagni.

Stúdíóíbúð: 37,4 fm geymslurými í kjallara hefur verið innréttað sem stúdíóíbúð og hentar vel til útleigu.

*Seljandi á húsið í heild og því er möguleiki á að kaupa einnig aðra íbúð í húsinu. Hún er 49,7 fm, þriggja herbergja og nýlega endurnýjuð, með sérinngangi og sérstöku fastanúmeri* Sjá hér

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is