Melgerði 13

730 Reyðarfjörður

Melgerði 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
62,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005

Lýsing

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Góð íbúð á 4. hæð í sex hæða lyftuhúsnæði fyrir 55 ára og eldri að Melgerði 13 á Reyðarfirði .

Í húsinu er félagsaðstaða eldri borgara í eigu sveitafélagsins.

Húsið er sex hæðir, næstneðsta hæðin er götuhæð frá norðri og þar er félagsaðstaðan.

Mjög fallegt útsýni er úr íbúðinn.

Svalir með glerlokun.

Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagt hol með fataskáp og auka geymsluskáp.

Svefnherbergi er parketlagt með góðum fataskáp.

Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu og rúmgóðum sturtuklefa.

Tengi fyrir þvottavél er á baðherberginu en einnig er sameigninlegt þvottahús með tækjum á jarðhæðinni.

Eldhús og stofa eru í einu rými, parket á gólfi. Eldhúsið er með góðri innréttingu.

Úr stofu er hurð út á svalir.

Íbúðinni fylgir talsverð sameign, m.a. hlutdeild í tveimur íbúðarherbergjum með eldunar- og hreinlætisaðstöðu sem ætlaðar eru gestum.

Á 1. hæðinni eru geymslur og sameign hússins, þar er einnig rúmgott þvottahús með þvottavélum og þurrkurum til afnota fyrir íbúa, einnig er gott pláss til að þurrka þvott