Hafnarbraut 12

200 Kópavogur

Ásett verð: 72.500.000 kr.

Hafnarbraut 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
78,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Byggingarár
2021
Fermetraverð
928.297 kr.

Lýsing

Hafnarbraut 12F, Kópavogi – Rúmgóð 2-3 herbergja íbúð á fjórðu hæð með góðu útsýni og bílastæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala og Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, kynna snyrtilega og einstaklega vel skipulagða 2-3 herbergja íbúð á fjórðu hæð við Hafnarbraut 12 í Kópavogi.

Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara.

Birt flatarmál eignarinnar er 78,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar sem íbúðin sjálf er 78,1 fm. Geymsla/barnaherbergi með glugga og opnanlegu fagi er innan íbúðar.

Fasteignamat fyrir árið 2027 verður: 75.550.000,-.

Eignin skiptist í anddyri, þvottahús, baðherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi/geymsla. Eldhús, borðstofa og stofa flæða saman í opnu og björtu alrými með útgengi út á svalir með glæsilegu útsýni.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.

Nánari lýsing

- Forstofa með góðum fataskápi og parketi á gólfi.

- Eldhúsið er í opnu og fallegu rými með stofu/borðstofu. Parket á gólfi og allar innréttingar eru sprautulakkaðar hvítar með silkimattri áferð.

- Stofan er opin og björt með partketi á gólfi og stórum gluggum. Gengið er út á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni.

- Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni og góðri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

- Svefnherbergið er mjög rúmgott með partketi á gólfi og góðu skápaplássi.

- Svefnherbergi ll/geymsla er með glugga með opnanlegu fagi.

- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara.

- Sameiginleg vagna- og hjólageymsla

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.