Snorrabraut 33

105 Reykjavík

Ásett verð: 61.900.000 kr.

Snorrabraut 33
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
69,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1940
Fermetraverð
894.509 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega glæsilega og mikið endurnýjaða 3.herbergja íbúð á efstu hæð í 6 íbúða stigahúsi við Snorrabraut 33 í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu og skemmtun.

Nánari lýsing

Forstofhol með harðparketi á gólfi , eldhúsð er opið inn í stofu með fallegri innréttingu og tækjum og harðparketi á gólfi, ísskápur fylgir með í kaupunum , hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og útgengi út á svalir sem snúa út á baklóð, barnaherbergi með parketi á gólfi , gluggi snýr úr á baklóð, baðherbergi með fallegri innréttingu , upphengdu salerni, walk-in sturtu, og handklæðaofni, þvottavél og þurrkari fylgja með eigninni,

Helstu endurbætur 2024

- Nýtt eldhús , innrétting frá IKEA og eldhústæki frá AEG

- Eldhús fært frá sér rými inn í stofu

- Nýtt baðherbergi alveg frá grunni , nýjar flísar, salerni, ný sturta og sturtugler, handklæðaofn og blöndunartæki frá Grohe. Þvottaaðstaða gerð á baðhebergi

- Nýtt parket frá Birgisson og hljóðdempandi dúkur undir parketið á allri eignnni.

- Nýjar innihurðar frá BYKO í allri eigninni

- Nýjar neysluvatnslagnir í allri íbúðinni.

- Ný ljós og lýsing í allri íbúðinni

- Nýtt svefnherbergi gert inn í gamla eldhúsi

- Nýjir ofnar að hluta

- Eignin heil spörsluð og máluð

- Allir gluggar pússaðir upp, sparslaðir og málaðir

- Svalahurð pússuð upp, spörsluð og máluð

- Nýtt rafmagn í allri íbúð, bæði tenglar og vírar

- Ný rafmagnstafla í íbúð

Helstu endurbætur á sameign

2010 - Baklóð endurnýjuð

2018 - Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð

2019 - Vatns- og frárennslislagnir lagfærðar

2019 - Drenlagnir austan við húsið endurnýjaðar

2023 - Herbergi í kjallara í eigu húsfélags breytt í stúdíóíbúð og innréttuð

2024 - Settir upp nýjir póstkassar í stigahús og dyrabjöllukerfi endurnýjað auk þess sem þurrkherbergi var málað

Nýleg sorptunnuskýli á baklóð.

Í kjallara hússins eru:

Sérgeymsla, 7,8 fermetrar að stærð.

Sameiginlegt þurrkherbergi, með gluggum

Sameiginlegt þvottaherbergi, með glugga og útgengi á baklóð. Sér tenglar fyrir hverja íbúð.

Sameiginleg hjólageymsla.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is