Hagamelur 12

107 Reykjavík

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Hagamelur 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
68,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1946
Fermetraverð
879.589 kr.

Lýsing

Axel Freyr og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsileg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi í húsi nr. 12 við Hagamel í 107 Reykjavík. Eignin er skráð 68,1 fm að stærð og skiptist í anddyri, hol, svefnherbergi, eldhús og stofu. Falleg eign í vel viðhöldnu húsi. Frábær staðsetning í vesturbænum. Skólar, verslanir, sundlaug og veitingastaðir í göngufæri.

Bókið skoðun hjá Axel Freyr í síma 857-2491 eða með tölvupósti á axel@remax.is eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is

Nánari lýsing:

Komið inn um sameiginlegan inngang í hol þar sem er fatahengi.

Eldhús er með nýlegri og fallegri innréttingu, ágætum borðkróki, góðum glugga og í innréttingu er tengi fyrir uppþvottavél.

Stofa íbúðar er rúmgóð og björt með glugga í suður og vestur og inn af stofu er svefnherbergi íbúðar.

Svefnherbergi rúmgott með góðum fataskáp.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum, nýlegri innréttingu, upphengdu WC og nýlegri sturtu. Á baðherbergi er einnig tengi fyrir þvottavél og þurkara.

Sér geymsla og er innangengt í hana frá íbúð.

Íbúðin er með fallegum gólfflísumm, gólfhita og sér mælum fyrir rafmagn og hita.

Sameiginlegt þvottahús er svo á sömu hæð.

Samkvæmt upplýsingum frá fyrra eiganda var dregið í nýtt rafmagn og pípulagnir íbúðar endurnýjaðar árið 2010 og árið 2006 fékk húsið viðurkenningu frá Reykjavíkurborg fyrir endurbætur eftir að það hafði verið endursteinað.

Falleg eign á frábærum stað í vesturbæ Reykjavíkur þar sem skólar, verslanir, Vesturbæjarlaug, veitingastaðir og öll þjónusta er í göngufæri.

Endurbætur síðustu ár:

2000: Rafmagnstafla endurnýjuð

2004: Gluggar voru endurnýjaðir

2005: Þakið var endurnýjað

2005: Húsið var steinað

2008-2010: Frárennslislagnir voru endurnýjaðar og bætt var við drén lögnum í kringum húsið

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Axel Freyr löggiltur fasteignasali í síma 857-2491 eða axel@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.