Víðihlíð 3 íbúð 203

604 Akureyri

Ásett verð: 78.900.000 kr.

Víðihlíð 3 íbúð 203
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
102,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
769.756 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Víðihlíð 3 íbúð 203 - Nýbygging

Glæsilegt 4ra herbergja endaíbúð á efri hæð og með sér inngangi í ný fjölbýlishúsi í Hörgársveit - stærð 102,5 m²

* Steypt hús með steyptri loftaplötu og timbur þaki.

* Ál/tré gluggar, þrefalt gler í gluggum.

* Hvítar innhurðar.

* Innréttingar eru frá Ikea.

* Ísskápur með frysti, ofn, örbylgjuofn, helluborð og vifta fylgja með við sölu.

* Loft verða klædd með hljóðdempandi plötum nema baðherbergi.

* Hljóðvist er umfram kröfur reglugerðar.

* Áætlaður afhendingartími eignar er haust 2026

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi og geymslu.

Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og þreföldum hvítum fataskáp.

Eldhús , matt dröppuð L-laga innrétting með borðplötu úr harðplasti í hvítu marmaralíki. Veggplötur á milli skápa eru samskonar og borðplata, marmaralíki. Ísskápur með fyrsti, span helluborð, ofn,örbylgjuofn og vifta fylgja með. Forstykki fyrir innbyggða uppþvottavél fylgir með.

Stofa og eldhús eru í björtu alrými með gluggum til tveggja átta. Harðparket verður á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Úr eldhúsi er gengið út á steyptar svalir.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, speglaskáp, upphengdu wc, walk-in sturtu, innfelldri lýsingu og opnanlegum glugga. Innrétting er á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Svefnherbergin eru þrjú , öll með hvítum fataskápum. Innfelld lýsing er í lofti í hjónaherbergi. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,9 , 9,7 og 9,0 m².

Geymsla er skv. teikningum 6,3 m² að stærð og þar er harðparket á gólfum.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla/inntaksrými er undir stigapalli skráð 26,0 m² að stærð

Annað

- Steyptar svalir með galvanseruðu handriði.

- Gólfhiti er í allri íbúðinni og handklæðaofn á baðherbergi.

- Vélræn loftræsting er úr baðherbergi og geymslu og í hjónaherbergi er „lunga“.

- Ídráttarrör eru úr inntaksrými út í bílaplan fyrir mögulega rafhleðslu.

- Nánari skilalýsingu má nálgast hjá fasteignasölu.

- Byggingarverktaki: Hamrar Byggingarfélag ehf.

Eignin er í einkasölu

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga.

Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.

Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.

ATH. myndir í auglýsingun eru úr íbúð 101

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.