Súðarvogur 4
104 Reykjavík
Ásett verð: 92.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 109,8 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2022
- Fermetraverð
- 846.084 kr.
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: 4ra herbergja horníbúð á 2. hæð í vandaðri byggingu í Vogabyggð. Íbúðin er 109,8 fm og er öll hin vandaðasta og afar björt með gluggum á þrjá vegu.
Eignin er í sérflokki með tilliti til gæða og frágangs:
- Sérsmíðaðar ítalskar innréttingum frá Gili Creation og kvartsstein á borðum
- Gólfsíðir gluggar og gólfhiti
- Vandað vínilparket á gólfum og ítalskar flísar á votrýmum
Eignin skiptist í: anddyri með sérsmíðuðum skápum.
Þar inn af er þvottahús með sérsmíðaðri innréttingu og vaski.
3 svefnherbergi öll með sérsmíðuðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ítölskum terrazzo flísum, með sturtu og fallegri innréttingu með kvartssteinsborðplötu.
Eldhúsið er opið við stofu. Sérsmíðuð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og eldhúseyja úr reyktri eik frá Gili Creation og á borðplötum og á veggnum bak við vaskinn er fallegur kvartssteinn. Innfelld lýsing í innréttingu, undirlímdur vaskur, blöndunartæki frá Grohe og vönduð tæki frá AEG.
Stofa og borðstofa eru í björtu rými með gluggum á þrjá vegu. Þaðan er útgengt á svalir til suðurs.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara og 6,9 fm geymsla innaf bílastæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir: Allar frekari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.