Tröllahraun 53

810 Hveragerði

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Tröllahraun 53
Tegund
Parhús
Stærð
164,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Fermetraverð
455.319 kr.

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna parhús að Tröllahrauni 53, samtals 164,5 fm að stærð, þar af 31 fm bílskúr. Eignin skilast á byggingarstigi 2, tilbúin að utan en ófrágengin að innan sem gefur kaupanda tækifæri til að fullklára eignina eftir eigin smekk. Áætluð afhending Haust 2026.

Um er að ræða timburhús á steyptum sökklum , kraftsperrur og límtré í þaki. Húsið verður klætt með litaðri báruálklæðningu í lit 9005 (svört) . Þak verður klætt ólituðu aluzink með álrennum. Framan á þakkanti verður slétt álklæðning og bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti . Gluggar og hurðir verða timbur/ál í lit 9005 með tvöföldu gleri, frá Byko eða sambærilegu. Lóð verður grófjöfnuð.

Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.

Skipulag samkvæmt teikningu

Samkvæmt teikningu er eignin skipulögð með eftirfarandi hætti:

Anddyri – 5,8 fm

Komið er inn í anddyri með plássi fyrir fataskáp.

Stofa / eldhús / alrými – 48,6 fm

Mjög rúmgott og opið alrými með góðu plássi fyrir stofu og borðstofu. Eldhús er staðsett í alrýminu með eyju og góðu vinnuplássi.

Hjónaherbergi – 17,9 fm

Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.

Svefnherbergi I – 10,2 fm

Svefnherbergi II – 11,5 fm

Baðherbergi – 7,2 fm

Þvottahús – 4,3 fm

Bílskúr – 31 fm

Innangengt er í bílskúr frá anddyri.

Frágangur að utan Báruálklæðning á veggjum í lit 9005

Þak klætt ólituðu aluzink

Álrennur

Slétt álklæðning á þakkanti

Bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti

Timbur/ál gluggar og hurðir í lit 9005

Tvöfalt gler

Lóð grófjöfnuð Mulningur í bílastæði

Ruslaskýli á lóð

Byggingarstig

Eignin skilast á byggingarstigi 2 , sem þýðir að húsið er fullfrágengið að utan en ófrágengið að innan sem gefur kaupanda tækifæri til að velja innréttingar, gólfefni og skipulag að eigin smekk.

Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.