Glitvangur 15
220 Hafnarfjörður
Ásett verð: 209.900.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 296,7 m²
- Herbergi
- 10
- Svefnherbergi
- 7
- Baðherbergi
- 3
- Byggingarár
- 1987
- Fermetraverð
- 707.449 kr.
Lýsing
Erling Proppé lgf. & REMAX kynna talsvert endurnýjað 296,7 fm einbýlishús (Kjartanshús) á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, 3 herb. aukaíbúð, möguleika á annarri minni aukaíbúð við Glitvang 15 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að aðalhæðin er 149,4 fm og neðri hæðin 147,3 fm, þar af 35 fm bílskúr samtals 296,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands .
Á neðri hæðinni er innangengt í bílskúr, herbergi með sér baðherbergi og stór 3 herb. aukaíbúð með sérinngangi.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar:
Erling Proppé.lgf // s. 690-1300 // erling@remax.is
Aðalhæð (efri hæð)
Rúmgóð forstofa . Flísar á gólfi, gólfhiti.
Gestasalerni , innfelld dökk Volablöndunartæki, veggsalerni. Flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti.
Borðstofa og stofa eru björt og rúmgóð rými, arinn með nýlegu gleri (lokun), sjónvarpshol með sérsmíðuðum sjónvarpsskenk, útgengt á hornsvalir.
Eldhús með sérsmíðaðri dökkmattri innréttingu, tvöfaldur ísskápur fylgir, tveir ofnar í vinnuhæð, helluborð, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur.
Þvottahús er innaf eldhúsinu, opnanlegur gluggi og útgengt á lóð. Þvottahúsið er flísalagt, gólfhiti.
Herbergisgangur, harðparket á gólfi.
Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni en opið er á milli tveggja barnaherbergja (auðvelt að loka aftur). Skápar eru í þremur herbergjum og harðparket á gólfi.
Baðherbergið er með sérsmíðuðum vask með tveimur blöndunartækjum, sérsmíðuð dökkmött innrétting, veggsalerni, rúmgóð flísalögð sturta með dökku gleri, frístandandi baðkar, sérsmíðaður stór spegill, öll blöndunartækin eru dökk frá Vola. Flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti.
Stigi niður á neðri hæð er úr forstofu.
Neðri hæð
Komið er niður í flísalagt hol með gólfhita.
Í dag er innangengt í bílskúr og í herbergi með sér baðherbergi úr holi. Auðvelt er að skipta upp holinu og útbúa aðra minni aukaíbúð með sérinngangi.
Aukaíbúð:
3 herb. íbúð með sérinngangi.
Skiptist þannig: Forstofa. Rúmgott eldhús með dökkri innréttingu, ofn og helluborð, stæði fyrir uppþvottavél og stæði fyrir þvottavél, góður borðkrókur. Baðherbergi með flísalagðri sturtu, veggsalerni og handklæðaofn. Rúmgóð stofa/borðstofa, tvö svefnherbergi.. Flísar eru á öllum rýmunum og gólfhiti þar allsstaðar. Sér gólfhitakerfi er fyrir íbúðina.
Bílskúrinn
Innangengt er í bílskúrinn úr holi neðri hæðar og er hann allur flísalagður, vaskur, heitt og kalt vatn, rafmagnsopnari á bílskúrshurð og gönguhurð.
Lóðin
Á suðvesturhorni er glæsileg og stór skjólrík verönd, þar er að finna grillskýli, saunu og kaldan pott.
Bílaplan er stórt og hellulagt.
Húsið hefur verið talsvert endurnýjað undanfarin ár:
** Klóaklagnir voru myndaðar fyrir 4-5 árum og eru úr plasti alveg út í götu.
** Að utan voru settar drenlagnir við húsið að hluta og nýr dælu- og klóaksbrunnur.
** Járn og pappi á þaki endurnýjað.
** Þakkantur endurnýjaður.
** Gardínur frá Álnabæ eru í öllu húsinu sem fylgja
** Flest ljós og ljósabrautir fylgja
** Öll gólfefni endurnýjuð.
** Flestar hurðir endurnýjaðar.
** Settur gólfhiti á flesta staði hússins þar sem eru flísar. (Ekki í bílskúr og baðherbergi stúdíóíbúðar)
** Allar innréttingar og tæki endurnýjuð.
** Öll blöndunartæki og baðherbergi endurnýjuð.
ath. Innra skipulag eignarinnar er ekki skv. upprunalegum teikningum hússins.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar:
Erling Proppé.lgf // s. 690-1300 // erling@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3 . Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.