Brekkustígur 8

101 Reykjavík

Ásett verð: 62.500.000 kr.

Brekkustígur 8
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
74,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1959
Fermetraverð
837.802 kr.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: mjög fallega og sjarmerandi 74,6 fm 2ja-3ja herbergja íbúð á 2.hæð á þessum vinsæla stað við Brekkustíg 8, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01.

Eignin Brekkustígur 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-0944 , birt stærð 74.6 fm.

Nánari lýsing:

Hol: parketlagt og með fataskáp.

Stofa: rúmgóð, björt og parketlögð. Hluti stofu var áður nýttur undir svefnherbergi.

Svefnherbergi: rúmgott, parketlagt og með góðum skápum á heilum vegg. Úgent á svalir.

Eldhús: mjög snyrtileg upprunaleg innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Flísar á gólfi.

Baðherbergi: flísar á gólfi og hluta veggja, snyrgtileg innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og gluggi.

Í sameign á jarðhæð er sameiginleg hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél

Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald á síðastliðnum árum og má þar helst nefna:

*** Þak var viðgert og endurnýjað fyrir rúmu ári síðan***

*** Gluggar, tréverk og múrverk yfirfarið og endurnýjað eftir þörfum***

*** Húsið málað 2022***

***Allir ofnar í íbúðinni voru hreinsaðir fyrir 4 árum***

***snjóbræðslukerfi var lagt fyrir framan húsið fyrir nokkrum árum***

Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.