Freyjunes 10 - 108 og 110

603 Akureyri

Ásett verð: 65.000.000 kr.

Freyjunes 10 - 108 og 110
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
138,800003051758 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
468.300 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Freyjunes 10 - bil 108 og 110

Um er að ræða tvö bil sem búið er að opna á milli að hluta en samtals stærð er því 138,8 fm. auk um 70 fm. vandaðs millilofts sem er ekki inni í heildarfermetrum. Gott athafnasvæði er fyrir framan bilin og bílaplan malbikað. Húsið stendur innst í botnlanga.

Báðir rýmin eru með flísar á gólfi, tvær rafdrifnar innkeyrsluhurðir eru í heildarrýminu og tvær gönguhurðir. Það er því möguleiki að loka á milli aftur og útbúa salerni í því rými sem er án þess í dag.

Milliloftið er eins og áður segir um 70 fm og nær það yfir báða eignarhlutana en gengið upp um góðan stálstiga úr vestara bilinu. Milliloftið skiptist í opið rými og snyrtingu við vesturenda, kaffistofu og skrifstofu . Parketi er á öllum gólfum á millilofti og á kaffstofu er innrétting með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél sem fylgja, auk þess fylgir tvöfaldur amerískur ísskápur sem stendur í opnu rými á millilofti. Önnur tæki og nauðsynlegir fylgihlutir þeirra á neðri hæð fylgja ekki.

Annað:

-Steypt hús

-Hæð í milliloft er um 2,5 metrar.

-Stærð innkeyrsluhurðar er 3,2 metrar á breidd og 3,3 metrar á hæð

-Hvor eignarhluti er um 9 metrar á dýpt og um 7 metrar á breidd

-Gólfhiti er á neðri hæðinni og ofnar á millilofti

-3ja fasa tenglar

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

berglind@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955