Grandavegur 47

107 Reykjavík

Ásett verð: 57.900.000 kr.

Grandavegur 47
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
67,3000003814697 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
860.327 kr.

Lýsing

Björt tveggja herbergja íbúð í lyftuhúsi að Grandavegi 47 ásamt stæði í bílageymslu. Mikið útsýni er frá íbúðinni. Húsið var tekið í gegn að utan 2019, steypuviðgert og málað. Yfirbyggðar svalir og fallegt útsýni til vesturs. Góð sameign sem hefur upp á að bjóða veislusal, sauna, heitan pott og sturtur. Húsvörður er í húsinu. Íbúðin er fyrir félagsmenn í Félagi eldri borgara (60 ára og eldri).

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 67,3m², þar af er stæði í bílageymslu skráð 23,1m². Ekki er að sjá að sérgeymsla íbúðar í kjallara sé inn í fermetratölu íbúðar.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Yfirbyggðar svalir frá stofu. Í sameign er sérgeymsla og í bílahúsi er sérstæði merkt 01.02

Nánari lýsing:

Komið er inn í íbúðina og ágætis forstofuskápur strax á vinstri hönd. Á hægri hönd er eldhúskrókur sem er opin inn í stofu. Ágætis eldhúsinnrétting, hvit og beyki. Stofan með parketi á gólfi. Gengið er út á yfirbyggðar svalir frá stofu. Svefnherbergið er innaf stofu með ágætis fataskáp og dúk á gólfi. Baðherbergið er með góðri sturtu og hvítri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél.

Í sameign á 10. hæð er samkomusalur með eldhúsi, snyrtingu, stórum svölum og þaðan er glæsilegt útsýni. Íbúar geta einnig pantað mat fyrir alla daga vikunnar sem kemur í samkomusalinn. Í sameign á 1. hæð er líkamsræktaraðstaða, sauna, búningsklefi og aðgangur að heitum potti á verönd með lokaðri skjólgirðingu. Hárgreiðslustofa er í húsinu.

Nánari uppl.

Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is