Vörðubrekka 8

806 Selfoss

Ásett verð: 4.900.000 kr.

Vörðubrekka 8
Tegund
Lóð
Stærð
5866 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
835 kr.

Lýsing

Stórborg fasteignamiðlun kynnir í einkasölu eignarlóðina Vörðubrekka 8, 806 Selfoss,nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi eignarlóðar réttindi.

Eignin Vörðubrekka 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 2528689, birt stærð 5866.0 fm. Eignarlóð undir sumar/heilsárshús.

Fjarlægð er rétt tæplega 100km úr Reykjavík á bundnu slitlagi.

Eignarlóð með fallegu útsýni steinsnar frá Laugarási í Biskupstungum úr landi Iðu 2. Lóðin er 5866 fm í rólegu sumarhúsahvefi í fallegri hallandi hlíð. Landið er í norðurhlíðum Vörðufells og hallar til austurs og er svæðið þekkt fyrir veðursæld. Lóð er í nágrenni við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands. Aðkoman er frá gamla Skálholtsveginum. Örstutt er yfir í Laugarás og Skálholt. Stutt er í Reykholt og Flúðir. Góð aðkoma og frábært útsýni til fjalla. Staðsetning er rétt hjá Hvítá, rétt hjá Laugarási. Landið er í hlíðum Vörðufells í halla og með útsýni.

Búið er að opna baðlón í Laugarási. Er það glæsileg aðstaða og með veitingastað.

sjá:Glæsilegt baðlón við árbakka Hvítár

laugaraslagoon.is

Gott aðgengi er að lóðinni, hitaveita og neysluvatn ásamt rafmagni komið á svæðið. Tengigjöld skv. gjaldskrá rafveitunnar og Veitna. Gert er ráð fyrir sameiginlegri rotþró er á svæðinu en eins geta menn sett upp rotþró á hverri lóð með heimild heilbrigðisnefndar sveitarfélagsins. Hver lóðareigandi sér um aðkomu að sinni lóð frá veginum.

Búið er að gera veg inn á lóð ( upp hlíðina) að byggingareit lóðar. Samkvæmt deiliskipulagstillögu má byggja eitt hús á lóð. Samanlagt byggingarmagn húsa má vera allt að 170-207fm. (nýtingarhlutfall er að hámarki 0.03.). Ennig má á lóðunum reisa svefnhús/gróðurhús að hámarki 30 fm. Ath enginn veiðiréttur fylgir lóðinni í Iðu/Hvítá.

Um Vörðufell: Vörðufell (391m) stendur stakt sunnan og austan Hvítár hjá Iðu og skammt frá Skálholti. Það er þríhyrningslaga og er bæði í Biskupstungum og á Skeiðum. Uppi á fjallinu er lítið stöðuvatn, Úlfsvatn, sem reynt var að sleppa í silungi. Fjallið er úr móbergi og grágrýti.

Útsýnið ofan af Vörðufelli er afbragðsgott á góðum degi og sífellt fleiri leggja leið sína þangað.

Algeng gönguleið er á Vörðufellið. Göngutími er 5-6 tímar.

Golfvellir og sundlaugar eru einnig í næsta nágrenni. ( Flúðir/Geysir/Reykholt)

Nánari upplýsingar veitir: Stefán Hrafn lögm,löggfasts. s:8952049, stefan@storborg.is