Kotabyggð 44

606 Akureyri

Ásett verð: 26.900.000 kr.

Kotabyggð 44
Tegund
Lóð
Stærð
205,799999237061 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
130.709 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Kotabyggð 44 - Spennandi einbýlishúsalóð / útsýnislóð í Vaðlaheiðinni

Lóðin er eignarlóð og skráð 2.145,0 m² að stærð.

Búið er að jarðvegsskipta fyrir rúmlega 200 m² einbýlishúsi.

Skv. aðaluppdrætti er gert ráð fyrir einbýlishúsi á einni hæð með einhalla og flötu þaki, auk sambyggðrar bílgeymslu, Sökum landhalla verði skýli undir suðurhluta hússins svo ekki þurfi eins mikla landfyllingu á lóð.

Innraskipulag eignar er skv. teikningum, forstofa, eldhús og stofa í opnu rými, hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, tvö 8,7 m² barnaherbergi, baðherbergi, tvær geymslur (önnur er 8,7 m² og getur nýst sem þriðja barnaherbergið), þvottahús og bílskúr.

Húsið er hannað af Valbirni Vilhjálmssyni, m2hús ehf.

Annað

- Eignarlóð á vinsælum stað í Vaðlaheiði, þar sem mikil uppbygging hefur farið fram á síðustu árum.

- Búið er að jarðvegsskipta.

- Um 5 mínútna akstur frá Akureyri.

- Einstakt útsýni yfir Eyjafjörð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.