Helluvað 19
110 Reykjavík
Ásett verð: 67.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 89,2 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2007
- Fermetraverð
- 761.211 kr.
Lýsing
Einstaklega rúmgóð og björt 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu lyftuhúsi með góðum suður sólpalli og stóru sérbílastæði í bílakjallara við Helluvað 19 í Norðlingaholti í Reykjavík. Bílastæði sem fylgir eigninni er fyrir fatlaðan einstakling og því sérstaklega stórt og við innganginn. Sér þvottahús er innan eignarinnar. Eignin hentar einnig fyrir fólk í hjólastól.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 89,2 fm. og þar af er geymsla 7,2 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa innbyggðum fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt, parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á skjólgóðan og stóran suður pall.
Eldhús er rúmgott með snyrtilegri innréttingu með efri og neðri skápum, bakarofn í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél, steinn á borði og borðkrók.
Svefnherbergi mjög stórt með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, flísalagðir veggir og gólf.
Bílastæði er í lokaðri bílageymslu og er gott aðgengi í stæðið. Búið er að leggja rafmagn fyrir bílahleðslustöð fyrir hvert bílastæði í bílakjallaranum.
Geymsla íbúðarinnar er í sameign í kjallara en hún er 7,2 fm.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanignu gudbjorg@trausti.is