AUSTURVEGUR 44

710 Seyðisfjörður

Ásett verð: 19.500.000 kr.

AUSTURVEGUR 44
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
122,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1945
Fermetraverð
159.574 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu AUSTURVEGUR 44, 710 Seyðisfjörður.

Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stakstæðum bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Íbúðarhús byggt árið 1945, 96.2 m² að stærð og bílskúr byggður árið 1962, 26.0 m² að stærð, samtals 122.2 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar ; Neðri hæð: Anddyri, tvö herbergi, hol/gangur geymsla og baðherbergi. Efri hæð: Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi. Bílskúr.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing;

Neðri hæð: Anddyri, dúkur á gólfi, gangur er innan við forstofu, þaðan liggur timburstigi upp á hæð.

Tvö herbergi, bæði án fataskápa.

Hol/gangur , þaðan liggur timburstigi upp á efri hæð, þvottaaðstaða, hitakútur og inntök.

Baðherbergi , salerni, handlaug og baðkar undir stiga.

Geymsla, er inn af holi/gangi.

Efri hæð: Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, frá stofu er útgengt út á svalir.

Eldhús , upprunaleg innrétting, helluborð (tvær hellur), ofn og vifta, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Eldavél er óvirk, en ný eldavél fylgir.

Herbergi er inn af alrými.

Austurvegur 44, einbýlishús á tveimur hæðum, jarðhæð er steypt, efri hæð er byggð úr timbri forsköluð. Valmaþak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar.

Þak var endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan að sögn seljanda. Bílskúr er timburskúr með járni á þaki. Hellulögð stétt er framan við húsið, malarplan, lóð er gróin,

afgirt að framanverðu. Lóð er 260.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-8311. Austurvegur 44.

Stærð: Íbúð 96.2 m². Bílskúr 26.0 m². Samtals 122.2 m².

Brunabótamat: 47.000.000 kr.

Fasteignamat: 26.800.000 kr.

Byggingarár: Íbúð 1945. Bílskúr 1962.

Byggingarefni: Steypt+timbur.