Burknavellir 17

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 68.700.000 kr.

Burknavellir 17
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
91,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
754.116 kr.

Lýsing

Virkilega falleg endaíbúð á 4. hæð ( efstu) ásamt stæði í bílakjallara og sérinngangi af svölum við Burknavelli 17a í Hafnarfirði.

Eignin er alls 91,1 fm og er 3ja til 4ra herbergja en mögulegt er að nýta geymslu í íbúð sem herbergi.

Íbúðin sjálf er 86,4 fm og sérgeymsla í kjallara er 4,7 fm skv fasteignaskrá.

Seljendur skoða skipti á minni eign!

Nánari lýsing:

Sérinngangur af svölum

Forstofa flísalögð með skáp.

Hol er parketlagt

Stofa og eldhús í björtu alrými með góðum gluggum sem veita mikilli birtu inn og gefa gott útsýni,

útgengt er úr stofu á vestur svalir sem er yfirbyggðar og með góðu útsýni, parket á gólfi stofu.

Eldhús með ljósar korkflísar á gólfi, falleg grá innrétting, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.

Ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð.

Tvö svefnherbergi með skápum, parket á gólfi.

Geymsla með parket á gólfi og glugga, er nýtt sem herbergi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með flísum á gólfi og vegg, hvít innrétting og sturtubaðkar.

Innaf baðherbergi er þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og hillur. Flísar á gólfi.

Sér stæði í bílgeymslu sem er rúmgott , merkt B09, fylgir íbúðinni. Sérinngangur af svölum.

Sérgeymsla í kjallara með góðum hillum, hátt til lofts og því nýtist geymslan vel.

Tvennar hjóla-og vagnageymslur í sameign.

Grunnkerfi fyrir rafhleðslustöð komið í bílakjallara.

Hleðslustöðvar komnar á sameiginlegt bílastæði.

*Lóð er frágengin.

*Snjóbræðsla er í hluta stétta fyrir framan húsið.

*Íbúðin er skráð 3ja herbergja en mögulegt að nýta geymslu í íbúð sem svefnherbergi, önnur sérgeymsla er svo í kjallara.

*Eigendur skoða skipti á minni eign.

*Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið

*Búið að setja upp myndavélakerfi í geymslugangi og bílakjallara.

Falleg útsýniseign á góðum stað innarlega á völlunum þar sem stutt er í skóla. leikskóla, verslanir og skemmtilegar gönguleiðir og útivistaperlur.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]