Hverfisgata 94 403
101 Reykjavík
Ásett verð: 117.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 123,1 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2018
- Fermetraverð
- 957.758 kr.
Lýsing
Jason Kristinn Ólasson, sími 7751515 eða netang jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna til sölu: Hverfisgata 94, 4. hæð . Virkilega vandaða og vel skipulagða 123,1 fermetra 3ja herbergja íbúð í glæsilegri nýbyggingu með lyftu á frábærum og rólegum stað í miðborginni auk sér bílastæðis í bílageymslu í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Gólfhitakerfi er í íbúðinni.
Eignin er öll innréttuð á vandaðan og smekklegan máta og eru innréttingar sérsmíðaðar úr svartbæsaðri eik og ná upp í loft. Innfelld lýsing er í loftum að hluta og kvartsteinn er á borðum innréttinga í eldhúsi og í baðherbergi. Sameign hússins er öll til fyrirmyndar og mjög smekklega innréttað anddyri. Myndavélakerfi er við inngang í húsið og mynddyrasímakerfi og rafmagnsopnun er á hurðum í sameign.
Mikið er lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan sameiginlegan suður garð.
Lýsing eignar:
Forstofa: rúmgóð, parketlögð og með fataskápum.
Svefnherbergi: stórt, parketlagt og með fataskáp.
Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi : rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borðum, fastir speglar, vegghengt wc, handklæðaofn og stór flísalögð sturta með sturtugleri.
Þvottaherbergi: flísalagt gólf og innréttingar með stæði fyrir vélar í vinnuhæð, vinnuborði, vaski og fatahengi.
Stofa: parketlögð og með gólfsíðum gluggum að hluta.
Eldhús : opið við stofu, parketlagt. Fallegar svartbæsaðar eldhúsinnréttingar með kvartsteini á borðum og gleri á milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð með innbyggðum háfi yfir. Innbyggður ísskápur með frysti. Eyja með kvartsteini á borðum og áfastri borðaðstöðu. Innbyggð uppþvottavél er í eyju og hangandi ljós yfir eyjunni fylgja. Úr eldhúsi og stofu er útgengi á rúmgóðar og skjólsælar svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi og handriði úr gleri. Fallegt útsýni er að Esjunni.
Stór sameiginleg lóð er til suðurs með tyrfðri flöt.
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með lögn að bílastæði til að setja upp rafhleðslustöð. Mjög rúmt er um bílastæðið og aðkoma að því góð.
Sérgeymsla , 6,3 fermetrar að stærð og er innifalin í 123,1 fermetra stærð eignarinnar.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á baklóð hússins. Innst í hjólageymslu hefur verið sett upp líkamsræktar aðstaða fyrir húsið með tækjum.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, veitingahús, söfn o.fl.
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.