Hestavað 5

110 Reykjavík

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Hestavað 5
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
114,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2013
Fermetraverð
699.650 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Ómar Hvanndal löggiltur fasteignasali og lögmaður kynna : fallega og vel skipulagða 3.herbergja 114,2 m2 rúmgóða íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi við Hestavað 5 í Norðlingaholti, fjölskylduvænt og eftirsótt hverfi. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Allar Nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is

Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, þvottahús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Geymsla í kjallara.

Nánari lýsing:

Anddyri er flísalagt með innbyggðum fataskáp.

Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi, úr stofu er útgengt á svalir til suðvesturs.

Eldhúsið er opið við stofu en þar er hvít innrétting með eyju og steinborðplötum.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.

Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.

Baðherbergið er flísalagt, hvít innréting og baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni.

Þvottahús er innan íbúðar, flísar á gólfum og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Eigninni fylgir 14,8 m2 geymsla í sameign sem og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Norðlingaholtið stendur næst Árbæjarhverfinu og við jaðar Heiðmerkur. Vinsælar gönguleiðir eru allt í kringum Norðlingaholt m.a. um Elliðavatn og Rauðavatn

Allar upplýsingar um eignina veitir Ómar Hvanndal Ólafsson löggiltur fasteignasali og lögmaður í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is