Laugavegur 82

101 Reykjavík

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Laugavegur 82
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
106,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1935
Fermetraverð
800.189 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali kynnir: Í einkasölu einstaklega góða fjögurra herbergja horn íbúð á annarri hæð við Laugaveg 82 í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Eignin var mikið endurnýjuð fyrir um sjö árum af fyrri eiganda og lítur hún einstaklega vel út.

Nánari upplýsingar veitir:

Halldór Sveinbjörnsson - löggiltur fasteignasali - halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali - baldur@fastgardur.is

Íbúðin skiptist í forstofu/gang, eldhús, þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi og geymslu á stigapalli sem hægt er að nota sem auka svefnherbergi.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 106,10 fermetrar.

Nánari lýsing:

Forstofa/gangur: Parket á gólfi.

Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með límtrésbekkplötu. Flísar milli efri og neðri skápa. Eldavél með bakaraofni og gufugleypi. Pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu, einnig fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Stofa: Parket á gólfi og gott pláss fyrir borðstofuborð.

Hjónaherbergi: Einstaklega rúmgott herbergi með góðu plássi fyrir fataskápa.

Svefnherbergi: Parket á gólfi.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með glugga í tvær áttir.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Vegghengt salerni, rúmgóður flísalagður sturtuklefi með glerskilrúmi.

Geymsla: Sérgeymsla í sameign á stigapalli.

Sameign: Sameiginlegt rými á jarðhæð með útgengi á óskipta baklóð.

Annað:

Hér er um að ræða bjarta og fallega íbúð á vinsælum stað í miðbæ Reykjavíkur, í göngufæri við alla helstu þjónustu og mannlíf.

Nánari upplýsingar veitir:

Halldór Sveinbjörnsson - löggiltur fasteignasali - halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali - baldur@fastgardur.is

Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

[link] | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður