Grænaborg 16 (402)

190 Vogar

Ásett verð: 60.000.000 kr.

Grænaborg 16 (402)
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
83,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
715.137 kr.

Lýsing

Valný fasteignasala og Kristín María Gunnarsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna:

Grænaborg 16 (402), 190 Vogar

Björt og sérlega vel skipulögð 83,9 fm fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð með svölum í lyftuhúsi að Grænuborg 16 í Vogum.

Um er að ræða virkilega góða eign á fjórðu hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi byggðu 2024 með lyftu. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, geymsla innan íbúðar, flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu og björt stofa með útgengi á svalir. Einstaklega gott skipulag og fjölskylduvænt í fallegu hverfi í Vogum.

Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Smelltu hér til að bóka skoðun.

Sýnum samdægurs!

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi og rúmgóður skápur.

Eldhús: Snyrtileg innrétting með góðu skápa- og borðplássi. Innbyggð uppþvottavél, bakarofn, helluborð og ísskápur sem fylgja með eigninni.

Stofa og borðstofa: Bjart alrými með parketi á gólfi, stórum gluggum og beinu útgengi út á svalir.

Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskáp.

Barnaherbergi I: Parket á gólfi og fataskápur.

Barnaherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi/þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf. Snyrtileg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Innréttuð aðstaða er fyrir bæði þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Sérgeymsla er staðsett innan íbúðar með parketi á gólfi.

Lyfta í húsinu.

Geymsla innan íbúðar.

Fallegt útsýni.

Aðeins 15 mínútna akstur til Reykjanesbæjar og 20 mínútur í Hafnarfjörð.

Fjölskylduvænt hverfi.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Kristín María / Löggiltur fasteignasali / 659-6075 / kristin @valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér .

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat .

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | [link] | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00