Háaleitisbraut 52

108 Reykjavík

Ásett verð: 86.900.000 kr.

Háaleitisbraut 52
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
129,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964
Fermetraverð
673.122 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, netfang jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Falleg endurnýjuð fjögurra herbergja vel skipulögð ca 130 fm. endaíbúð á 2. hæð með útsýni í fjölbýlishúsi í Háaleitinu.

Falleg og vel skipulögð íbúð á eftirsóttum stað miðsvæðis í borginni.

Lýsing eignar:

Forstofa : parket á gólfi, fataskápur.

Eldhús : Viðarinnrétting, uppþvottavél, ísskápur fylgir með, flísar á gólfi, borðkrókur, gluggar í tvær áttir.

Stofa/borðstofa: rúmgóð og björt stofa, harðparket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í vestur. Yfirbyggðar svalir.

Svefnálma : harðparket á gólfi, gluggi í enda sem gefur góða birtu.

Hjónaherbergi : rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápar, útgengi á yfirbyggðar svalir.

Barnaherbergi 1 : gott herbergi, harðparket á gólfi.

Barnaherbergi 2: gott herbergi, harðparket á gólfi.

Baðherbergi : Hvítar flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting, baðkar og gluggi.

Bílskúr : Skráður 21 fm, með vatni og rafmagni.

Stigahús er snyrtilegt, lítill geymsluskápur (0,4 fm) á stigapalli framan við íbúð fylgir eigninni.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins (5,2 fm).

Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara hússins og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi.

Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum:

Ástandsskoðun var framvæmd utanhúss af Verksýn árið 2019 og ráðist í úrbætur á öllu sem þar var lagt til.

Útveggir: múrun, sprunguþétting, þykkhúð, sílan og málun.

Skipt um þakrennur.

Frárennslislagnir hússins voru fóðraðar árið 2010

Þakjárn yfirfarið og málað 2011

Drenlagnir endurnýjaðar 2013

Góð eign á 2. hæð með þremur svefnherbergjum, yfirbyggðar svalir og bílskúr í góðu húsi á vinsælum stað í Reykjavík!

Stutt er í skóla, verslanir, samgöngur og þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson. Löggiltur fasteignasali. Sími: 775 1515. Netfang: jason@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.